Aðvaranir

Askja í Dyngjuföllum og Herðubreiðarlindir eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna á hálendinu norðan Vatnajökuls.

Frá bílastæði við Öskju (í Vikraborgum) er stikuð gönguleið að Víti og Öskjuvatni. Frá skálum FFA í Dreka ganga margir inn Drekagil og frá Herðubreiðarlindum geta vanir fjallamenn gengið á sjálfa Herðubreið. Ferðafélag Akureyrar býður einnig upp á fjölmargar gönguleiðir og skíðaferðir um hálendið.

Á sumrin fara landverðir í Öskju í fræðslugöngur og er gestum velkomið að taka þátt. Er það kjörin leið til að kynnast svæðunum betur.

Landvörslustöð í Drekagili:
Sími: 842 4357/ 842 4357
GPS hnit: N65° 02.514' W016° 35.691'

 

Kverkfjöll eru mikil megineldstöð í norðurbrún Vatnajökuls og þriðji hæsti fjallabálkur landsins á eftir Öræfajökli og Bárðarbungu. Í Kverkfjöllum hefur byggst upp þjónusta við ferðamenn og má finna þar áhugaverðar gönguleiðir um eitt öflugasta háhitasvæði landsins.

Skála- og landverðir eru staðsettir í Kverkfjöllum á sumrin. Þeir veita ferðamönnum allar helstu upplýsingar sem viðkoma svæðinu og þjóðgarðinum.

Símanúmer landvarða: 842 4369
GPS hnit landvörslustöðvar: N64° 44.850' - W016° 37.890'

 

Vegasamgöngur

Vegur F88 liggur frá þjóðvegi 1 um Herðubreiðarlindir að Drekagili. Á leiðinni eru tvö vöð sem geta verið ófær minni jeppum. Frá Drekagili liggur vegur F894 að bílastæði nærri Öskju.

Frá svonefndri Austurleið (F910) liggur Kverfjallaleið (F902) suður til Kverkfjalla. Skammt austar liggur Hvannalindaleið (F903) suður í Hvannalindir og áfram þar sem hún kemur inn á veg F902.

Upplýsingar um ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á ferðir á svæðið má nálgast hjá www.visitmyvatn.iswww.east.is og www.visitakureyri.is

Gisting

Ferðafélag Akureyrar rekur tjaldsvæði og skála í Herðubreiðarlindum og við Drekagil nærri Öskju.

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Ferðafélag Húsavíkur reka Sigurðarskála í Kverkfjöllum. Við skálann er tjaldsvæði. Þar eru líka vatnssalerni og sturtur. 

Fleiri skálar eru á hálendinu norðan Vatnajökuls sem nýst gætu ferðalöngum á svæðinu:

Dyngjufjalladalur: Þar er skáli Ferðafélags Akureyrar. Skálinn er opinn en panta þarf afnot og gistingu í skálanum hjá ferðafélaginu.
Kistufell: Þar er skáli sem Björgunarsveitin Stefán í Mývatnssveit hefur umsjón með. Skálinn er opinn en hafa þarf samband við sveitina fyrir afnot af skálanum.
Gæsavötn: Þar er skáli Gæsavatnafélagsins. Skálinn er læstur og hafa þarf samband við félagið fyrir afnot af skálanum.
Bræðrafell: Þar er skáli Ferðafélags Akureyrar. Skálinn er opinn en panta þarf afnot og gistingu í skálanum hjá ferðafélaginu. Skálinn er ekki innan þjóðgarðsmarka og einungis er hægt að komast að skálanum gangandi.

Eldsneyti, matvara og veitingar

Hvorki veitingasala, matvöruverslun né eldsneytissala er á svæðinu. 

Veður og færð

Askja er á hálendi Íslands og þar geta verið miklir öfgar í veðurfari, einnig yfir sumartímann. Um Öskju gildir því sama regla og um hálendisferðir almennt, þ.e. að athuga vel veðurspá áður en haldið er af stað þangað uppeftir. Veðurspá fyrir miðhálendið má finna hér.

Engin veðurstöð er í Öskju. Næsta stöð er á Möðrudalsöræfum, en hafa ber í huga að hún er staðsett um 250 metrum lægra en nærsvæði Öskju. Veðurupplýsingar frá stöðinni á Möðrudalsöræfum og spá fyrir Norðausturland er hægt að nálgast hér.

Veðurstöð í Kverkfjöllum

Vefmyndavél í Kverkfjöllum

Upplýsingar um ástand vega og ýmislegt fleira má finna á vef Vegagerðarinnar