Náttúran kallar - Fræðsludagskrá sumarið 2026
Viltu fræðast um hörfandi jökla, villt blóm, víðerni og fossa? Tengjast friðlýstum svæðum, fá innblástur og njóta fersks lofts?

Fræðsludagskrá Vatnajökulsþjóðgarðs, Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Náttúruverndarstofnunar hefur verið birt og er áhersla lögð á fjölbreyttar fræðslugöngur sem henta flestum. FræðslutímabilIið er að jafnaði frá 15. júní til 15. ágúst á láglendi og 15. júlí til 15. ágúst á hálendi.
Fræðsla er einn af hornsteinunum í starfsemi þjóðgarðs. Í sumar er fjölbreytt fræðsla í boði, vítt og breitt um víðfem svæði þjóðgarðsins: Barnastundir, síðdegisrölt eða kvöldspjall. Einnig er boðið upp á sérstaka viðburði eins og Dag hinna villtu blóma, Alþjóðadag landvarða, geimfaragöngu eða brennu og söng. Landverðir og annað starfsfólk þjóðgarðsins standa síðan vaktina í gestastofum, á starfsstöðum þjóðgarðsins og úti í mörkinni, boðnir og búnir til að taka á móti ferðalöngum sumarsins.
Við hvetjum alla gesti til að kynna sér dagskrána og taka þátt í fræðslugöngum og viðburðum sumarsins.
Öll velkomin!
Hér má skoða fræðsludagskrá sumarsins í Vatnajökulsþjóðgarði
Vatnajökulsþjóðgarði
Hér má skoða fræðsludagskrá friðlýstra svæða Náttúruverndarstofnunar í heild.
Náttúruverndarstofnunar