Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Breytingatillaga að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs er varðar svæði sem nefnt er Austurafrétt Bárðdæla

Breytingatillaga hefur verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

7. maí 2026

Breytingatillaga að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs er varðar svæði sem nefnt er Austurafrétt Bárðdæla hefur verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

Stjórnunar‐ og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er sett fram í samræmi við ákvæði laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 og reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 300/2020. Við stækkun þjóðgarðs er heimilt að gera viðauka við stjórnunar og verndaráætlun, sbr. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð sem segir: „Við stækkun þjóðgarðsins er heimilt að gera viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun með lýsingu á mörkum og náttúru og ákvæðum um stjórnun og vernd hins nýja svæðis, án þess að öll áætlunin sé tekin til endurskoðunar. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum 4.–6. mgr. Sameina skal viðaukann við stjórnunar- og verndaráætlun við næstu endurskoðun hennar.“

Hluti af Austurafrétt Bárðdæla var friðlýst sem hluti af Vatnajökulsþjóðgarði í september 2021 með breytingu nr. 1135/2021 á reglugerð nr. 300/2020 um Vatnajökulsþjóðgarð. 

Tillaga að breytingu á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs varðandi Austurafrétt Bárðdæla var samþykkt til kynningar á fundi svæðisráðs norðursvæðis þann 2.3.2026 og á fundi svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs þann 22.4.2026.

Framlagða tillögu að breytingu á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og upplýsingar um aðdraganda hennar hér.

Nánari upplýsingar er að fá hjá starfandi þjóðgarðsverði á norðursvæði, Stefaníu Eir Vignisdóttur netfang: [email protected] eða verkefnastjóra, Helgu Árnadóttur netfang: [email protected].

Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni en aðkoma hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur til að skapa sátt um daglegan rekstur og framtíð friðlýstra svæða.

Opinn kynningarfundur um áætlunina verður haldinn fimmtudaginn 21.maí, kl 17.00, að Kiðagili í Bárðardal.

Athugasemdum skal skilað með tölvupósti til Náttúruverndarstofnunar ([email protected]) eða bréfleiðis með utanáskriftinni: Náttúruverndarstofnun, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur.

Skilafrestur athugasemda er til og með 18. júní 2026.