Beint í efni

Afmæli þjóðgarðsins og fræðsludagskrá landvarða kynnt

Vatnajökulsþjóðgarður á afmæli í dag 7. júní og er 14 ára. Í tilefni dagsins kynnum við fræðsludagskrá landvarða fyrir sumarið í þjóðgarði okkar allra. Starfsmenn okkar eru fullir eftirvæntingar að taka á móti fjölbreyttum hópi gesta, hvort sem er í fjöru eða á fjallstoppi, við skoppandi læk eða beljandi stórfljót, á víðáttum sandsins, í jöklanna hrammi eða í skjólsælli laut.

Ákvörðun um stofnun þjóðgarðsins markaði tímamót í sögu náttúruverndar á Íslandi. Við stofnun þjóðgarðsins árið 2008 voru friðlýst 10.857 km2 af einstökum náttúru- og menningarminjum. Ný svæði hafa bæst við á liðnum árum og er þjóðgarðurinn nú alls 14.967 km2, eða tæp 15% af landinu.

Fræðsla er einn af hornsteinunum í starfsemi þjóðgarðs. Í sumar er fjölbreytt fræðsla í boði, vítt og breitt um víðfem svæði þjóðgarðsins: Barnastundir, síðdegisrölt og sérstakir viðburðir eins og Dagur hinna villtu blóma og Alþjóðadagur landvarða. Landverðir og aðrir starfsmenn þjóðgarðsins standa síðan vaktina í gestastofum, á starfsstöðum þjóðgarðsins og úti í mörkinni, boðnir og búnir til að taka á móti ferðalöngum sumarins.

Fræðsludagskrá landvarða 2022

Hlökkum til að sjá þig í Vatnajökulsþjóðgarði í sumar!