Beint í efni

Breiðamerkursandur - viðauki við stjórnunar - og verndaráætlun

Svæðið nær yfir Jökulsárlón og Fellsfjöru og afmarkast af Fjallsá í vestri og Fellsá í austri. Svæðið varð hluti af Vatnajökulsþjóðgarði sumarið 2017. Það geymir miklar gersemar, en þær frægustu hafa verið sterkt aðdráttarafl ferðamanna og atvinnustarfsemi undanfarin ár.

Að neðan má nálgast öll gögn vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun á Breiðamerkursandi, sem tók gildi með staðfestingu ráðherra 30. júní 2021. Tillagan var unnin skv. ákvæðum 6.mgr. 12.gr laga 60/2007 og unnin fyrir tilstuðlan ráðgjafar Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, Náttúrustofu Suðausturlands og Nýheima þekkingarseturs. Í júlí 2022 varð viðaukinn hluti af 3. útgáfu stjórnunar- og verndaráætlunar. Í þeirri samsettu heildaráætlun alls þjóðgarðsins rúmast ekki jafn nákvæmar upplýsingar og grunnplögg einstakra svæða, en fyrir vikið eru t.d. nákvæmari kort í viðaukanum.