Endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar
Unnið er að endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Allar upplýsingar um ferlið og gögn birtast á þessari síðu.

Forsendur endurskoðunar
Forsendur endurskoðunar
Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráðast í heildarendurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins og nýta við það þá reynslu sem safnast hefur síðan áætlunin kom fyrst fram í febrúar 2011. Nú er í gildi þriðja útgáfa, frá 2022, sem inniheldur ýmsar breytingar og nokkra viðauka fyrir svæði sem hafa bæst við þjóðgarðinn á liðnum árum.
Efnistök hafa haldist óbreytt frá fyrstu útgáfu en breytingar á lögum og reglugerð um þjóðgarðinn ásamt þróun í ferðamennsku og stefnumörkun fyrir hann, sem og samþykkt þjóðgarðsins á heimsminjaskrá árið 2019, hafa kallað á að efni, efnistök og framsetning áætlunarinnar verði endurskoðuð.
1. áfangi - Verkefnislýsing
1. áfangi - Verkefnislýsing
Verkefnislýsing vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs hefur verið birt til kynningar, frá og með 1. október 2026. Gefinn er fjögurra vikna frestur til að koma á framfæri umsögnum og ábendingum við verkefnislýsinguna.
Verkefnislýsing fyrir endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar
Í verkefnislýsingunni er gerð grein fyrir fyrirhugaðri endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins, helstu viðfangsefnum vinnunnar, vinnuferli og áfangaskiptingu. Þar er jafnframt fjallað um hvernig staðið verður að samráði og þátttöku hagaðila og almennings við gerð nýrrar áætlunar.
Endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar er umfangsmikið verkefni. Í nýrri áætlun verður meðal annars fjallað um verndun náttúru- og menningarminja, landnotkun, samgöngur og leiðanet, innviði og þjónustu, atvinnustarfsemi og aðra nýtingu innan þjóðgarðsins. Verkefnislýsingin markar ramma utan um þá vinnu sem fram undan er og þau álitaefni sem taka þarf til skoðunar.
Mikilvægt er að sjónarmið og þekking þeirra sem þekkja til svæðisins og hafa hagsmuna að gæta komi fram snemma í ferlinu. Í verkefnislýsingunni eru því einnig settar fram spurningar sem ætlað er að vekja til umhugsunar um helstu viðfangsefni endurskoðunarinnar og kalla fram ábendingar sem nýst geta í áframhaldandi vinnu.
Opinn kynningarfundur um verkefnislýsinguna verður haldinn á Teams þann 7. október kl 17.00, þar sem verkefnið verður kynnt. Hér er hlekkur á fjarfund.
Verkefnislýsingu og tvo viðauka hennar má nálgast hér fyrir neðan
Senda inn umsögn eða athugasemd - umsagnarfrestur til 28. október 2026
Umsagnir eða athugasemdir skal senda á netfangið [email protected].
Umsagnir og viðbrögð við þeim verða birt hér á vefnum að lokinni úrvinnslu.

Gildandi stjórnunar- og verndaráætlun, viðaukar og eldri vinna
Fyrsta útgáfa stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs var samþykkt árið 2011 og endurbætt í 2. útgáfu 2013. Í tengslum við ný svæði innan þjóðgarðs hafa verið unnir viðaukar vegna Krepputungu og Breiðamerkursands. Í ljósi þróunar í ferðamennsku, náttúruvernd og stjórnsýslu voru afmarkaðir þættir áætlunarinnar teknir til endurskoðunar 2021, áðurnefndir viðaukar prjónaðir við og ákvæði um veiðar á austursvæði tekin til endurskoðunar. Þar með varð til 3. útgáfa stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs sem tók gildi 5. júlí 2022.
Frá gildistöku 3. útgáfu hefur einn viðauki við stjórnunar- og verndaráætlunar verið samþykktur, fyrir Hoffellslambatungur, í janúar 2026. Viðauki fyrir Austurafrétt Bárðdæla er í lokaafgreiðslu. Unnið er að viðaukum fyrir Sandfell í Öræfum og Herðubreið og hluta Ódáðahrauns, en þessi svæði bættust við þjóðgarðinn árið 2021 (Sandfell) og 2019 (Ódáðahraun).