Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Jökulsá á Fjöllum

Gengið er frá áningarstað í Krepputunguhrauni norðaustan við Upptyppinga. Leiðin liggur í gegnum vikurbreiður og rúnað basalthraun sem ber þess merki að vera forn flóðafarvegur hamfarahlaupa fyrir jökulárnar tvær sem umlykja Krepputunguna - Jökulsár á Fjöllum og Kreppu. Endað er á syllu þar sem horft er yfir Jökuls á Fjöllum flæða undir Upptyppinga og stuðlaða hraunkletta.

Vegalengd
2,4 km báðar leiðir
Áætlaður tími
45 mín
Erfiðleikastig
Auðveld
Hækkun
20 m
Upphafsstaður
Krepputunguhraun