Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Störf í boði

Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins.

Að staðaldri starfa rúmlega 50 manns hjá þjóðgarðinum en yfir sumartímann fer starfsmannafjöldi yfir 120. Höfuðstöðvar þjóðgarðsins eru á Höfn í Hornafirði og aðrar starfsstöðvar eru Ásbyrgi, Mývatnssveit, Skriðuklaustur/Fellabær,Skaftafell, Kirkjubæjarklaustur og á höfuðborgarsvæðinu. Krafturinn á bak við þjóðgarðinn liggur ekki einungis í einstakri náttúru, heldur einnig í kröftugu og ánægðu starfsfólki.

Um Náttúruverndarstofnun

Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar, sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.

Að­stoð­ar­þjóð­garðs­vörð­ur suð­aust­ur­svæð­is Vatna­jök­uls­þjóð­garðs

Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarþjóðgarðsvarðar sem er einnig staðgengill þjóðgarðsvarðar á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Meginþungi starfseminnar fer fram á Breiðamerkursandi og nærliggjandi svæðum.

Aðstoðarþjóðgarðsvörður tekur virkan þátt í stjórnun og þróun þjóðgarðsins auk annarra friðlýstra svæða á suðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er á Höfn í Hornafirði.

Sérfræðingur í þjónustu og miðlun 

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling til að hafa umsjón með þjónustu við gesti Vatnajökulsþjóðgarðs sem heimsækja Snæfellsstofu á Skriðuklaustri. Starfið er fjölbreytt og áhugavert og felst meðal annars í umsjón með daglegum rekstri Snæfellsstofu, fræðslu, miðlun og móttöku gesta.

Sérfræðingurinn heyrir beint undir þjóðgarðsvörð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og hefur starfsaðstöðu í Snæfellsstofu og á Egilsstöðum. Um áhugavert heilsársstarf er að ræða.

Landvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í Snæfellsstofu. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins, fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana. 

Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Landvarsla er bæði á hálendi í Krepputungu og Snæfelli og á láglendi í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri.

Almenn umsókn

Viltu vera á skrá hjá okkur?
Mikilvægt er að taka fram í umsókninni hvar á landinu þú kýst að starfa og hvernig starfi þú leitar að. Eingöngu er ráðið í tímabundnar stöður eftir þessari leið. Allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja sérstaklega um þær.