Snæfellsstofa
Snæfellsstofa er gestastofa og upplýsingamiðstöð fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Opnunartímar
Mánudag - föstudag: 10-16
Laugardag - sunnudag: 12-17
Hagnýtar upplýsingar
Skálar og tjaldsvæði
Snæfellsskáli er við Snæfell, þar er gisting fyrir um það bil 45 manns og einnig tjaldsvæði, vatnssalerni og sturtur. Nokkrir fjallaskálar eru í friðlandinu í Lónsöræfum eða jaðri þess.
Aðgengismál
Aðgengi í Snæfellsstofu
Í Snæfellsstofu er gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Sérmerkt bílastæði stendur utan við gestastofuna og greið leið er þaðan að inngangi hússins. Aðalhurðin er sjálfvirk og nægt rými er fyrir hreyfihamlaða innanhúss. Í Snæfellsstofu er salerni með auknu aðgengi. Starfsfólk gestastofunnar hefur fengið leiðbeiningar um móttöku gesta með hreyfihamlanir og er ávallt reiðubúið til aðstoðar. Myndir má finna í skjalinu hér til lýsingar. (Myndirnar tók Tinna Hallgrímsdóttir)
