Snæfellsstofa er gestastofa og upplýsingamiðstöð fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Snæfellsstofa opnaði sumarið 2010 og er hún fyrsta vistvænt vottaða bygging landsins samkvæmt breska umhverfisstaðlinum BREEAM. Í Snæfellsstofu er sýningin Veraldarhjólið sem fjallar um hringrás og mótun náttúrunnar. Sýningin leggur áherslu á samspil gróðurfars og dýralífs á austursvæði þjóðgarðsins.Við hönnun hennar var lögð áhersla á að börn gætu snert, lyktað og prófað sig á ýmsum sýningarmunum. Minjagripaverslun er í gestastofunni með áherslu á vörur úr heimabyggð og nágrannasveitum þjóðgarðsins.
Afgreiðslutími 2023
Athygli er vakin á því að aðstæður kunna að leiða til frekari breytinga á afgreiðslutíma. Þrátt fyrir skerta þjónustu í gestastofum er þjóðgarðurinn áfram opinn gestum.
Opið í apríl þriðjudaga og miðvikudaga frá 10-15
Opið virka daga í maí frá 10 – 16
Opið um helgar í maí frá 12-17
Júní / Júlí / Ágúst: Alla daga 10-17
Opið virka daga í september frá 10-16
Opið um helgar í september frá 12-17
Opið í október þriðjudaga og miðvikudaga frá 10-15
Á vetrartíma er opið eftir samkomulagi, þ.e. gestir geta haft samband með fyrirvara og verður þá reynt að bregðast við því.
Heimilisfang
Gestastofan er staðsett á Skriðuklaustri rétt sunnan við afleggjarann upp á Snæfellsöræfi.
Aðgengi er fyrir fatlaða.
Skriðuklaustur
701 Egilsstaðir
Sími: 470 0840 / Fax: 470 0849
snaefellsstofa@vjp.is
