Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Sýningin Vorferð í Skaftafellsstofu

Í október 2025 var sýning Jöklarannsóknafélags Íslands: Vorferð sett upp í farandsýningarrými Skaftafellsstofu.

4. febrúar 2026

Sýningin Vorferð fjallar um sögu Jöklarannsóknarfélags Íslands í 70 ár. Hún er samstarfsverkefni félagsins og Náttúruminjasafns Íslands og var fyrst sett upp árið 2021 í sérsýningarrými safnsins í Perlunni. Sýningin er nú á ferðalagi um Vatnajökulsþjóðgarð og var sett upp í Skaftárstofu á Kirkjubæjarklaustri árið 2024 og er nú aðgengileg gestum í Skaftafellsstofu síðan í október 2025.

Jöklarannsóknafélag Íslands var stofnað árið 1950 og á sýningunni er fjallað um sögu þess og helstu viðfangsefni. Vorferð á Vatnajökul er farin á hverju ári, oftast í byrjun júní, og stendur í 1-2 vikur. Eitt verkefna félagsins eru mælingar á stærð skriðjökla. Jón Eyþórsson veðurfræðingur hóf kerfisbundnar mælingar á stöðu jökulsporða árið 1930 og fékk heimafólk í lið með sér. Guðlaugur Gunnarsson í Svínafelli sinnti mælingum lengst allra, eða í 60 ár. Samfelld mælingasaga skriðjöklanna hefur reynst dýrmæt fyrir vísindasamfélagið og þessar langtímamælingar eru afar mikilvægur liður í því að fylgjast með áhrifum loftslagsbreytinga á jökla.

Jöklavefsjá og vefur Jöklarannsóknarfélagsins

Hér má skoða vefsíðu Jöklarannsóknarfélagsins Jorfi.is Jöklarannsóknafélag Íslands.

Jöklavefsjáin birtir sporðamælingar og gögn um útbreiðslu og afkomu íslenskra jökla og ýmsar aðrar upplýsingar um jöklana, meðal annars fjölmargar ljósmyndir frá mismunandi tímum.

Jöklavefsjá