Verðkönnun vegna veitingasölu í Skaftafelli
Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir tilboðum í leigu á aðstöðu og búnaði til reksturs veitingasölu fyrir Vatnajökulsþjóðgarð í Skaftafelli.
11. febrúar 2019
Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir tilboðum í leigu á aðstöðu og búnaði til reksturs veitingasölu fyrir Vatnajökulsþjóðgarð í Skaftafelli.
Stofnunin vill leigja hæfum aðila aðstöðu, húsnæði, búnað o.fl. til reksturs og umsjónar á veitingasölu í Skaftafelli. Áhugasamir aðilar hafi samband við Valbjörn Steingrímsson hjá Vatnajökulsþjóðgarði, netfang: [email protected], til að fá verðkönnunargögn afhent. Nánari upplýsingar einnig í síma 575 8407.
Tilboðsfrestur rennur út kl 16.00 þann 22. febrúar nk.