Beint í efni

Veitingasalan í Skaftafelli lokuð í apríl

Veitingasala Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli verður lokuð frá 1.-30. apríl 2019. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

25. mars 2019

Veitingasala Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli verður lokuð frá 1.-30. apríl 2019. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Í Skaftafelli eru margar náttúruperlur og áhersla hefur verið lögð á að gefa gestum kost á góðum gönguleiðum til að geta notið útivistar með sem minnstri truflun af ökutækjum. Gestum hefur fjölgað mjög hratt síðustu árin og nú dreifast heimsóknirnar yfir allt árið í stað þess að vera einungis á sumrin eins og var fyrstu áratugi þjóðgarðsins. Það er ánægjuleg þróun þegar horft er til þess að fyrir fáeinum árum var það markmið margra að skapa heilsársstörf í ferðaþjónustu.

Síðustu árin hefur þjóðgarðurinn rekið veitingasölu í Skaftafelli. Í haust ályktaði stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráðs suðursvæðis um að þörf væri fyrir veitingarekstur á svæðinu en að sá rekstur væri ekki hluti af kjarnastarfsemi þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn auglýsti eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér veitingareksturinn, en þrátt fyrir ágæt viðbrögð við auglýsingunni komu engin tilboð í veitingareksturinn. Skortur á starfsmannahúsnæði var álitinn helsti þröskuldur fyrir mögulega tilboðsgjafa. Nú er verið að fara yfir hvaða möguleikar eru í stöðunni. Þar sem stjórn og svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs hafði lagt til að veitingareksturinn yrði leigður út var ekki gert ráð fyrir honum í rekstraráætlun þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn þarf eins og aðrar ríkisstofnanir að starfa í samræmi við fjárheimildir og í ljósi stöðunnar hefur verið tekin ákvörðun um að loka veitingasölunni í Skaftafelli í aprílmánuði á meðan unnið er að lausnum til lengri tíma.