Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Töfrar jöklanna skoðaðir á Kirkjubæjarklaustri

Helgina 18. – 19. september síðastliðinn var ráðstefnan Töfrar jöklanna – þverfagleg nálgun, haldin á Kirkjubæjarklaustri

Frá Skaftárstofu Vatnajökulsþjóðgarðs

Helgina 18. – 19. september síðastliðinn var ráðstefnan Töfrar jöklanna – þverfagleg nálgun, haldin á Kirkjubæjarklaustri. Að ráðstefnunni stóðu Kirkjubæjarstofa, Náttúrustofa Suðausturlands, Rannsóknarsetur HÍ á Höfn og Vatnajökulsþjóðgarður.

Eins og nafnið ber með sér voru efnistökin frá ýmsum sjónarhornum. Þarna voru kynntar rannsóknir á jöklum, áhrifum loftslagsbreytinga, eldvirkni, landmótun og vistkerfum á jöklunum og áhrifasvæðum þeirra. Jöklar skipa einnig stóran sess í menningu okkar og sögu, bókmenntum, listum, náttúrutengingu okkar og framtíðarsýn og sá þáttur fékk einnig sitt vægi í fjölbreyttri og afar áhugaverðri dagskrá.

Alls áttu 18 fyrirlesarar þátt í dagskránni og færum við þeim bestu þakkir fyrir sitt framlag, sem og öðrum ráðstefnugestum fyrir góða og gefandi samveru.