Þátttakendur í Snorraverkefni heimsóttu Skaftafell

Skaftafell fékk í gær góða gesti, hóp þátttakenda í Snorraverkefni ásamt verkefnastjóra, Julie Summers. Snorraverkefni er samstarfsverkefni Íslands, Kanada og Bandaríkjanna og heitir eftir Snorra Þorfinnssyni, fyrsta Íslendingnum sem fæddist í Ameríku – en verkefnið snýst um að gefa fólki á aldrinum 20-30 ára tækifæri til að kynnast upprunanum (Íslendingar geta sótt um að komast til ættingja sinna í Kanada og þarlend ungmenni geta sótt um að kynnast heimaslóðum ættingja sinna á Íslandi). Tengslin milli Íslands og Kanada eru sterk. Árið 1875 stofnuðu Íslendingar eins konar nýlendu við Winnipegvatn, Nýja Ísland, og í seinni tíð hafa margir sótt Íslendingahátíð sem haldin er árlega í Gimli.
Taylor Stevens er fæddur og uppalinn í Gimli, en býr nú í Winnipeg í Manitoba. Hann dvaldi hjá frænku sinni á Hnappavöllum í tvær vikur og á meðal þess sem hann gerði var að kynna sér þjóðgarðinn í Skaftafelli; hann fór í fræðslugöngu með landverði og einnig tók hann þátt í vinnu með landverði sem var að lagfæra stikur á gönguleið í Skaftafellsheiði. Svo skemmtilega vill til að landvörðurinn heitir Snorri, og það var vel viðeigandi fyrir þátttakanda í Snorraverkefni!
Í dag kom allur hópurinn sem nú er á Íslandi á vegum Snorraverkefnisins í heimsókn í Skaftafell. Þau gengu upp að Svartafossi og hjá Sigrúnu Sigurgeirsdóttur, sérfræðingi í Skaftafelli, fengu þau fræðslu um þjóðgarðinn. Einnig ræddi Sigrún við þau um menningartengsl Öræfinga við Vesturheim. Það voru miklu fleiri sem fóru frá Norður- og Austurlandi heldur en þeir sem fóru héðan, en engu að síður var eftirsjáin mikil hjá þeim sem horfðu á eftir stórum fjölskyldum flytja brott úr samfélaginu: þó hægt væri að skiptast á bréfum, þá vissu flestir að það væri ólíklegt að þau næðu að hittast aftur. Það var þó raunabót að fá góðar fréttir sendar yfir hafið og vináttubönd gátu haldist mann fram af manni. Meiri upplýsingar um Snorraverkefnið má finna á heimasíðunni www.snorri.is
Á myndinni er Taylor Stevens næstum fyrir miðju, í grænum stuttermabol með útlínum Vatnajökuls, en fyrir framan hann er Julie Summers.
Næst lá leið hópsins að Jökulsárlóni, en síðan ætluðu þau áfram austur á bóginn. Þátttakendur í verkefninu koma víða að og þau ætluðu að fara allan hringinn til að kynnast landinu sem best.