Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Rekstur veit­inga­sölu í gesta­stofu Skafta­felli

Auglýst er eftir umsóknum um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði. Rekstur veitingasölu í gestastofu Skaftafelli.

30. mars 2026
Skaftafellsstofa í Skaftafelli

Náttúruverndarstofnun kt. 700924-1570, auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að starfrækja veitingasölu í húsnæði gestastofu í Skaftafelli tímabilið:

1. júní 2026 – 30. nóvember 2027

Samkvæmt 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð er óheimilt að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Náttúruverndarstofnun, sbr. einnig 15. gr. a laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007.

Náttúruverndarstofnun mun gera samning við einn rekstraraðila. Skilyrði sem rekstraraðili þurfa að uppfylla og sýna fram á í umsóknargögnum eru eftirfarandi:

  • Hafa reynslu af rekstri veitingasölu.
  • Hafa skráningu í fyrirtækjaskrá sem lögaðili ekki einstaklingur.
  • Vera í skilum með opinber gjöld, þ.m.t. skattgreiðslur og lífeyrisskuldbindingar.
  • Reksturinn þarf að vera opinn minnst 300 daga yfir árið.
  • Hafa sett sér umhverfis- og sjálfbærnistefnu sem inniheldur markmið um að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar og tryggja að náttúra þjóðgarðsins verði ekki fyrir skemmdum að völdum starfseminnar.
  • Búi yfir tillögum að vöruframboði og matseðli þar sem áhersla er lögð á hráefni úr héraði og íslenskt vöruúrval.
  • Tilboð verða útilokuð uppfylli þau ekki skilyrði um persónulegar aðstæður sem fram koma í lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. 4. mgr. 21. gr. laga nr. 100/2021.

Tilboð eru eingöngu tekin til skoðunar uppfylli þau ofangreind skilyrði og hafi verið sýnt fram á það í umsókn.

Fjárhagsstaða rekstraraðila skal jafnframt vera það trygg að hann geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Náttúruverndarstofnun.

Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að meta tilboð aðila ógilt sem hefur áður vanrækt skyldur sínar gagnvart Vatnajökulsþjóðgarði eða Náttúruverndarstofnun í sambærilegri starfsemi.

Á samningstíma skal rekstraraðili hafa gild starfsleyfi frá viðeigandi heilbrigðiseftirliti.

Tilboðum verður tekið í samræmi við hæsta verð gildra tilboða. Tilboðsverð skulu ekki innifela virðisaukaskatt. Komi upp sú staða að tilboð tveggja eða fleiri rekstraraðila verði jöfn verður varpað hlutkesti um þau tilboð.

Tilboð rekstraraðila skal vera hlutfall af mánaðarlegri veltu án virðisaukaskatts. Náttúruverndarstofnun mun ekki taka tilboðum sem eru lægri en 1% af veltu.

Auk hlutfalls af veltu skal rekstraraðili greiða fast mánaðargjald kr. 600.000. Þá greiðir rekstraraðili allt rafmagn sem til kemur vegna starfseminnar.

Sorp sem til kemur vegna rekstursins skal alfarið vera á ábyrgð rekstraraðila, þar með talið kostnaður við urðun og sorphirðu.

Umsjónaraðilar fyrirspurna eru eftirfarandi;

Hrafnhildur Ævarsdóttir, þjóðgarðsvörður, sími, 470 8300 ,

Netfang: [email protected]

Linda B. Hallgrímsdóttir, aðstoðarþjóðgarðsvörður, sími 470 8300,

Netfang: [email protected]

Einnig er vakin athygli á því að nánari og nauðsynlegir skilmálar vegna auglýsingar/reksturs verða afhentir þeim aðilum sem hafa samband við ofangreinda aðila í tölvupósti.

Fyrirspurnir um auglýsingarferlið og skilmála skulu berast til ofangreindra aðila eigi síðar en 22. apríl. 2026. Spurningar og svör við fyrirspurnum munu vera send til allra aðila með tölvupósti sem hafa móttekið skilmálalýsingu sem er hluti af þessari auglýsingu.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað á rafrænu formi í tölvupósti á netfangið [email protected] merkt: “rekstur veitingasölu” 2026 fyrir kl. 16:00 þann 27. apríl 2026.

Með undirritun á framlögðu tilboði sínu skuldbindur bjóðandi sig til að standa við tilboð sitt í 4 vikur frá opnun.

Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að vísa frá öllum umsóknum eða hafna einstökum umsóknum uppfylli þær ekki skilyrði sem tilgreind eru í auglýsingu þessari og/eða ef fullnægjandi gögn fylgja ekki umsókn, sbr. 2. mgr. 35. gr. reglugerðar um Náttúruverndarstofnunar. Þá er áskilinn réttur til að hætta við auglýsingarferlið á grundvelli málefnalegra ástæðna, s.s. ef engin gild tilboð berast.