Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Öryggi gesta í fyrirrúmi - breytt aðgengi að Dettifossi vestan ár

28. maí 2026
Dettifoss / Guðmundur Ögmundsson

Í kjölfar mikilla rigninga í byrjun sumars árið 2025 féll bergskriða við Dettifoss. Víða komu sprungur í ljós á gljúfurbarmi og í kjölfarið var svæðinu við Fosshvamm lokað í öryggisskyni á meðan frekari athuganir fóru fram. Við rannsóknir sérfræðinga á svæðinu kom í ljós að víðfeðmt sprungunet leynist víða undir jarðveginum og sprungur gera engan greinarmun á göngustígum, útsýnispöllum eða klettum.

Ljóst er að veðrun er mikil á svæðinu, hvort sem það er í formi fossúðans, sem baðar nærsvæði fossins upp úr vatni hvern dag eða árviss átök frosts og þýðu þegar veturinn færist yfir. Það er í eðli gljúfra að vera í sífelldri mótun, bæði berghrun og sprungumyndun mála iðnar nýjar myndir í landslagið. Jökulsárgljúfur eru þar engin undantekning, þetta er svæði þar sem náttúran ein ræður ríkjum.

Líf okkar mannfólksins er einnig breytingum háð og við þurfum að aðlaga okkur að náttúrunni og breyttum aðstæðum. Ljóst er að Fosshvammurinn er ekki öruggt svæði lengur og þjóðgarðsvörður verður að grípa til viðeigandi aðgerða til að tryggja öryggi gesta á svæðinu til framtíðar. Því hefur verið tekin sú ákvörðun að Fosshvamminum verði varanlega lokað fyrir allri umferð.

Strax í sumar verða innviðir fjarlægðir af sprungusvæðinu í Fosshvammi og gönguleiðir verða færðar með tilliti til þessara breytinga. Áfram verður unnið að frekari uppbygginu göngupalla norðan við fossinn, þar sem gert verður ráð fyrir hringleið.

Unnið verður að endurheimt vistkerfa í Fosshvammi, sem leiða mun til bættrar gæðaupplifunar gesta með fallegri ásýnd að fossinum.

Skýrt er að aðgengi að Dettifossi mun breytast frá því sem áður var en útsýnið að honum verður áfram til staðar. Hinn forni vinur mun áfram syngja sinn söng og heilla hvern þann sem ber hann augum.