Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Opinn fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón

Fundurinn verður haldinn á Hrollaugsstöðum 24. júní næstkomandi klukkan 17:00

16. júní 2026

Náttúruverndarstofnun, í samstarfi við Umhverfis-, orku-og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörð, boðar opinn fund um málefni framtíðaruppbyggingar við Jökulsárlón, þann 24. júní n.k..

Á fundinum munu fulltrúar stýrihóps um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón fara yfir þá vinnu sem unnin hefur verið og kynna næstu skref í ferlinu. Jafnframt gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma sjónarmiðum sínum og ábendingum á framfæri. Markmið fundarins er að eiga milliliðalaust samtal um framhald málsins og tryggja að sjónarmið nærsamfélagsins nýtist við áframhaldandi mótun verkefnisins.

Staðsetning: Hrollaugsstaðir í Suðursveit

Tími: 17:00-19:00

Boðið verður upp á veitingar.

Viðburður á facebook síðu Vatnajökulsþjóðgarðs