Beint í efni

Niðurstöður á afgreiðslu umsókna um gerð samninga um íshellaferðir og jöklagöngur á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Samkvæmt lögum um Vatnajökulsþjóðgarð eiga þeir sem reka atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði að gera samning við þjóðgarðinn þar sem sett eru skilyrði fyrir starfseminni m.a. með tilliti til verndar umhverfis og öryggis gesta.

12. október 2020

Þann 31. júlí 2020 var auglýst eftir umsóknum um gerð samninga um íshellaferðir og jöklagöngur á Breiðamerkurjökli, Falljökli/Virkisjökli, Skeiðarárjökli og Skálafellsjökli. Var það mat Vatnajökulsþjóðgarðs á grundvelli verndarmarkmiða þjóðgarðsins, upplifunar gesta og öryggis þeirra, að nauðsynlegt væri að takmarka fjölda þeirra gesta sem farið væri með í ferðir á þessi svæði. Í auglýsingunni var því tilgreindur eftirfarandi hámarksfjöldi gesta á hverju svæði sem samningar yrðu gerðir um.

  • Breiðamerkurjökull austur: 650 manns á dag
  • Breiðamerkurjökull vestur: 650 manns á dag
  • Falljökull/Virkisjökull: 1.000 manns á dag
  • Skeiðarárjökull: 500 manns á dag
  • Skálafellsjökull: 500 manns á dag

Á fundi svæðisráðs suðursvæðis 7. september 2020, var, eftir tillögu starfsmanna, ákveðið að hækka hámarksfjölda fyrir Falljökul/Virkisjökul, úr 500 upp í 1.000 manns á dag.

Í samráði við hagsmunaaðila var ákveðið að skilgreina verkefnið sem þróunarverkefni og að samningar yrðu að þessu sinni gefnir út til eins árs. Þannig mætti nýta reynsluna til að bæta og efla umsóknarferlið og samningagerð vegna atvinnutengdrar starfsemi í þjóðgarðinum til framtíðar.

Alls bárust umsóknir frá tuttugu og sjö fyrirtækjum á þeim fimm svæðum sem auglýst voru. Afgreiðslu umsókna er nú lokið og liggur úthlutun fyrir. Unnið er að undirritun samninga við rekstraraðila með rafrænum hætti.

Tuttugu og sjö fyrirtæki töldust uppfylla skilyrði að loknu mati á umsóknargögnum og fengu þau öll jákvætt svar um gerð samnings við þjóðgarðinn. Umsóknir um fjölda gesta á þremur svæðum voru samanlagt umfram hámarksfjölda sem tilgreindur var í auglýsingu. Af þeim sökum var við úthlutun á fjölda gesta beitt hlutfalllegri skerðingu miðað við það sem sótt hafði verið um. Við framkvæmd úthlutunar var byggt á sjónarmiðum sem fram koma í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, reglugerð þjóðgarðsins og atvinnustefnu hans. Hlutfallsleg skerðing var meiri eftir því sem sótt var um heimild fyrir fleiri gestum auk þess sem ákveðið lágmark var sett þar sem ekki kom til skerðingar.

Vatnajökulsþjóðgarður þakkar fyrir góðar ábendingar og gott samstarf við rekstraraðila við framkvæmd atvinnustefnu sinnar. Áfram verður unnið að frekari þróun umsóknar- og verkferla innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Allar frekari athugasemdir og fyrirspurnir berist á [email protected].