Beint í efni

Málþing 25. mars - Víðerni í víðum skilningi

Hvað eru víðerni? Af hverju skipta þau máli? Hversu mikilvæg eru íslensk víðerni í alþjóðlegu samhengi? Hver eru gildi víðerna fyrir Íslendinga? Stofnun Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi um víðerni í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð. Málþingið verður haldið í Norræna húsinu 25. mars frá kl. 10-16 en verður einnig í beinu streymi

18. mars 2022

Málþinginu er ætlað að vera umræðugrundvöllur um víðerni út frá ólíkum sjónarmiðum. Fyrir liggur að kortleggja þurfi víðerni Íslands í ljósi breytinga á náttúruverndarlögum. Í framhaldi þarf að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að vernda sérstaklega tiltekin svæði á Íslandi sem óbyggð víðerni. Í því samhengi má t.d. nefna ítarlega endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og hvaða gildi óbyggð víðerni eigi að hafa í Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Upptaka frá málþinginu

Dagskrá málþingsins