Beint í efni

Laust starf: Yfirlandvörður á austursvæði

Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf yfirlandvarðar á austursvæði þjóðgarðsins. Staðan er heilsársstaða, með aðsetur í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri og/eða Fellabæ en starfið krefst einnig dvalar á hálendi yfir sumartímann.

4. febrúar 2021

Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins. Að staðaldri eru tæplega 30 manns við starf hjá þjóðgarðinum en yfir sumartímann fer starfsmannafjöldi yfir 100. Meginstarfsstöðvar eru í Ásbyrgi, Mývatnssveit, Skriðuklaustri/Fellabæ, Höfn í Hornafirði, Skaftafelli og Kirkjubæjarklaustri auk miðlægrar skrifstofu á Urriðaholti í Garðabæ. Krafturinn á bak við þjóðgarðinn liggur ekki einungis í einstakri náttúru, heldur einnig í kröftugu og ánægðu starfsfólki.

Yfirlandvörður á austursvæði

Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf yfirlandvarðar á austursvæði þjóðgarðsins. Staðan er heilsársstaða, með aðsetur í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri og/eða Fellabæ en starfið krefst einnig dvalar á hálendi yfir sumartímann. Um er að ræða fullt starf í dagvinnu með sveigjanlegan vinnutíma. Starfið er krefjandi, fjölbreytt og skemmtilegt.

Umsóknarfrestur er liðinn.