Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Laus störf: Snæfellsstofa og austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til starfa á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í Snæfellsstofu.

7. apríl 2026

Landvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í Snæfellsstofu. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins, fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana. 

Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Landvarsla er bæði á hálendi í Krepputungu og Snæfelli og á láglendi í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri.

Um ótímabundið starf er að ræða.

Nánari upplýsingar og umsókn

Ragna Fanney Jóhannsdóttir, Þjóðgarðsvörður, tölvupóstur: [email protected]

Ýttu hér fyrir nánari upplýsingar og til að sækja um

Sérfræðingur í þjónustu og miðlun

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling til að hafa umsjón með þjónustu við gesti Vatnajökulsþjóðgarðs sem heimsækja Snæfellsstofu á Skriðuklaustri. Starfið er fjölbreytt og áhugavert og felst meðal annars í umsjón með daglegum rekstri Snæfellsstofu, fræðslu, miðlun og móttöku gesta.

Sérfræðingurinn heyrir beint undir þjóðgarðsvörð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og hefur starfsaðstöðu í Snæfellsstofu og á Egilsstöðum. Um áhugavert heilsársstarf er að ræða.

Nánari upplýsingar og umsókn

Ragna Fanney Jóhannsdóttir, Þjóðgarðsvörður, tölvupóstur: [email protected]

Ýttu hér fyrir nánari upplýsingar og til að sækja um