Laus störf: Jökulsárgljúfur
Náttúruverndarstofnun auglýsir starf svæðissérfræðings fyrir Norðausturland sem sinnir einnig starfi aðstoðarþjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum ásamt starfi yfirlandvarðar í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði.

Náttúruverndarstofnun auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi störf í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði.
Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - Aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum
Svæðissérfræðingur gegnir hlutverki staðgengils þjóðgarðsvarðar og tekur virkan þátt í stjórnun og þróun svæðisins auk annarra friðlýstra svæða á Norðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er í Ásbyrgi.
Nánari upplýsingar og umsókn
Guðrún Jónsdóttir, Þjóðgarðsvörður, tölvupóstur: [email protected]
Ýttu hér fyrir nánari upplýsingar og til að sækja um
Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir þjóðgarðsvörð á svæðinu. Starfsstöð er Ásbyrgi.
Nánari upplýsingar og umsókn
Guðrún Jónsdóttir, Þjóðgarðsvörður, tölvupóstur: [email protected]