Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Laus störf: Að­stoð­ar­þjóð­garðs­vörð­ur suð­aust­ur­svæð­is Vatna­jök­uls­þjóð­garðs

Strandlengjan frá Kvíármýrarkambi og alla leið að Höfn býður upp á einstaka nálægð við Vatnajökul. Jökulmótað landslagið og fjaran skapa aðstæður fyrir fjölbreytt dýralíf, rannsóknir og ferðamennsku.

17. apríl 2026

Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarþjóðgarðsvarðar sem er einnig staðgengill þjóðgarðsvarðar á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Meginþungi starfseminnar fer fram á Breiðamerkursandi og nærliggjandi svæðum.

Aðstoðarþjóðgarðsvörður tekur virkan þátt í stjórnun og þróun þjóðgarðsins auk annarra friðlýstra svæða á suðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er á Höfn í Hornafirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning landvörslu og önnur rekstrar- og mannauðsmál í umboði þjóðgarðsvarðar á svæðinu
  • Ber ábyrgð á gæða- og umhverfismálum svæðisins
  • Leiðir fræðslumál svæðisins
  • Eftirfylgni framkvæmdaverkefna
  • Leyfismál á starfssvæði
  • Samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu
  • Tekur þátt í þróun og stefnumótun svæðisins

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
  • Geta til að þróa hugmyndir og verklag
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
  • Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur
  • Þekking og reynsla af landvörslu er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Jóna Ísólfsdóttir mannauðsstjóri og Inga Dóra Hrólfsdóttir sviðsstjóri Landvörslusviðs.

Inga Dóra Hrólfsdóttir

sviðsstjóri Landvörslusviðs

Tölvupóstur: [email protected]

Margrét Jóna Ísólfsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: [email protected]

Sótt er um hér:

Aðstoðarþjóðgarðsvörður suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs | Ísland.is

Nánar um svæðið

Jökulsárlón - Vatnajökulsþjóðgarður

Heinaberg - Vatnajökulsþjóðgarður