Beint í efni

Landvarðanámskeið

Umhverfisstofnun auglýsir nú landvarðanámskeið 2020. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi en landverðir starfa víðsvegar um landið á friðlýstum svæðum.

19. desember 2019

Umhverfisstofnun auglýsir nú landvarðanámskeið 2020. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi en landverðir starfa víðsvegar um landið á friðlýstum svæðum.

Um námskeiðið

Námskeiðið er 110 klst. og eru megin umfjöllunarefnin eftirfarandi;

  • Landverðir, helstu störf
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Vinnustaðir landvarða
  • Öryggisfræðsla

Námskeiðið hefst 30. janúar og lýkur 23. febrúar. Kennt er um helgar og á kvöldin á virkum dögum. Hluti námskeiðsins verður kenndur í fjarkennslu en skyldumæting er í tvær lotur, þar af lotu kennda á Snæfellsnesi. Námskeiðið er háð því að næg þátttaka náist. Námskeiðsgjald er kr. 155.000.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar hér og fer skráning jafnframt fram þar. Skráning hefst 2. janúar og stendur til 15. janúar 2020. Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Jónasdóttir hjá Umhverfisstofnun, [email protected]

Landvarsla í Vatnajökulsþjóðgarði

Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins. Að staðaldri eru tæplega 30 manns við störf hjá þjóðgarðinum en yfir sumartímann fer starfsmannafjöldi yfir 100. Meginstarfsstöðvar eru í Ásbyrgi, Mývatnssveit, Skriðuklaustri/Fellabæ, Höfn í Hornafirði, Skaftafelli og Kirkjubæjarklaustri auk miðlægrar skrifstofu á Urriðaholti í Garðabæ. Landverðir starfa á meginstarfstöðvum, í gestastofum og landvörslustöðvum á hálendi. Krafturinn á bak við þjóðgarðinn liggur ekki einungis í einstakri náttúru, heldur einnig í kröftugu og ánægðu starfsfólki.