Beint í efni

Glitský gleðja

Undanfarna daga hafa Glitský verið áberandi frá Breiðamerkur- og Skeiðarársandi. Glitskýin og hækkandi sól hafa því glatt starfsfólk og gesti Vatnajökulsþjóðgarðs á nýju ári.

3. janúar 2020

Glitský sem heita á ensku Nacreous clouds eru sérstaklega björt og litrík eins og sjá má á myndinni hér sem er tekin sunnan við Öræfajökul 3. janúar 2020. Á vef Veðurstofu Íslands er að finna eftirfarandi fróðleik um Glitský:

Hvernig myndast glitský?

Glitský myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C), og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrötum (t.d. HNO3.3H2O). Þessi síðarnefndu ský geta valdið ósóneyðingu, en yfirborð ískristallanna getur virkað sem hvati í efnaferli þar sem klór í heiðhvolfinu breytist í skaðleg ósóneyðandi efni (t.d. klór-mónoxíð ClO).

Kristallarnir í skýjunum beygja sólarljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að við sjáum það koma frá öðrum hluta glitskýsins. Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðardreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má sjá rauða, gula og græna flekki í bland.