Beint í efni

Fleiri gestakomur í Ásbyrgi í júlí og ágúst en fyrir Covid-19

Nýgerð samantekt á gestakomum yfir sumarið á fjölsóttustu áningarstöðum Vatnajökulsþjóðgarðs sýnir að fjöldi gesta í Ásbyrgi var meiri í júlí og ágúst síðastliðnum en í sömu mánuðum árið 2019. Sunnan jökuls voru um 20% prósent færri gestir í sömu mánuðum miðað við fyrir Covid.

7. september 2021
Tjaldsvæðið í Ásbyrgi. Mynd: Guðmundur Ögmundsson.

Það fór ekki framhjá ferðalöngum sumarsins að veður var með eindæmum gott á norður- og austurhluta landsins. Leiða má að því líkum að veðurblíðan hafi laðað að sér fjölda gesta norður í Jökulsárgljúfur þar sem að í júlí og ágúst voru 12% og 4% fleiri ferðamenn í Ásbyrgi en í sömu mánuðum árið 2019 (tafla 2). Eins voru um 33% fleiri gestir á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi í sumar samanborðið við undanfarin tvö sumur, eða um 18.500 manns (tafla 1). Þar af var hlutfall Íslendinga mun hærra síðustu tvö ár, eða allt að 85% (mynd 1).

Tafla 1: Gistinætur í Ásbyrgi 2019-2021

Við Dettifoss vestanverðan var gestafjöldinn í júlí og ágúst ekki langt frá því sem hann var árið 2019 eða um 45.000 manns. Gestum við Dettifoss austanverðan hefur hins vegar fækkað frá 2019. Ástæða þess er líklega tilkoma nýs Dettifossvegar en sumarið 2020 var lokið við gerð heilsársvegar á milli þjóðvegs 1 á Mývatnsöræfum og þjóðvegs 85 í Kelduhverfi.

Gistinætur á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi 2019-2021 (t.v.) . Gestafjöldi á þremur áningarstöðum í Jökulságljúfrum; Ásbyrgi, Dettifossi að vestanverðu og Dettifossi að austanverðu í maí til ágúst 2019 til 2021 (t.h.).

Tafla 2: Yfirlit yfir gestafjölda í Jökulsárgljúfrum, við Jökulsárlón og í Skaftafelli í maí, júní, júlí og ágúst árin 2019 til 2021.

Sunnan jökuls, í Skaftafelli og við Jökulsárlón, voru um 20% færri gestir í júlí og ágúst miðað við sama tíma árið 2019. Engu að síður komu um 90.000 gestir hvorn mánuð á báða staði, eða að meðaltali um 3.000 gestir á dag. Bæði norðan og sunnan jökuls var hins vegar færra um gesti fyrrihluta sumars (tafla 2). Leiða má að því líkum að strangar sóttvarnarreglur á þeim tíma séu stærsta ástæðan fyrir færri ferðalöngum. Ekki er búið að taka saman gögn fyrir hálendissvæði þjóðgarðsins, en í nýútgefinni ársskýrslu fyrir árið 2020 kemur fram að fækkun gesta á hálendinu vegna heimsfaraldurs Covid-19 var minni en talið var fyrir það ár og tilfinning starfsmanna er að svo hafi einnig verið í sumar.

Mynd 3: Gestafjöldi við Jökulsárlón og í Skaftafelli í maí til ágúst 2019 til 2021.

Á sama tíma og þjóðgarðurinn fagnar þeim fjölda sem vill njóta gæða náttúrunnar þá fylgir miklum gestagangi fylgja líka miklar annir og starfsmenn þjóðgarðsins fóru ekki varhluta af því. Mikil orka fór í daglega umhirðu svæða og þjónustu við gesti. Rekstarframlög þjóðgarðsins náðu ekki að tryggja fulla mönnum, m.a. vegna styttingar vinnuviku vaktavinnustarfsfólks. Útfærslur á starfseminni vegna Covid-19 takmarkana tóku einnig tíma og orku frá starfsfólki. Á annasömum dögum var því mikið álag á starfsfólk þjóðgarðsins sem lagði sig engu að síður 100% fram við að veita gæðaþjónustu, við gesti og náttúru þjóðgarðsins.

Tjaldsvæðið í Skaftafelli á góðum sumardegi 2021. Mynd: Sigrún Sigurgeirsdóttir.