Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Auglýst er eftir umsóknum um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði

Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem bjóða vilja upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur á neðangreindum fjórum svæðum á tímabilinu 1. október 2023 til 30. september 2024.

1. ágúst 2023

Gerður verður samningur við þá umsækjendur sem uppfylla tilgreind skilyrði. Hægt er að sækja um heimild til rekstrar á fleiri en einu svæði.

Svæðin eru eftirfarandi:

  1. Breiðamerkurjökull austur.
  2. Breiðamerkurjökull vestur.
  3. Falljökull/Virkisjökull.
  4. Skeiðarárjökull.

Samkvæmt 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð er óheimilt að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Vatnajökulsþjóðgarð, sbr. einnig 15. gr. a laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007.

Skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla og sýna fram á í umsóknargögnum eru eftirfarandi:

  • Hafa í gildi leyfi Ferðamálastofu sem ferðaskrifstofa eða ferðasali dagsferða, sbr. lög nr. 96/2018 um Ferðamálastofu. Umsækjandi skal vera handhafi leyfisins.
  • Hafa í gildi ábyrgðartryggingu samkvæmt lögum um Ferðamálastofu.
  • Hafa sett sér umhverfis- og sjálfbærnistefnu og markmið um að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar og tryggja að náttúra þjóðgarðsins verði ekki fyrir skemmdum af völdum starfseminnar. Sérstaklega verður horft til þessa þáttar í umsóknarferlinu.
  • Vera með skriflegar öryggisáætlanir sem ná yfir allar ferðir rekstraraðila á viðkomandi svæði, sbr. lög um Ferðamálastofu nr. 96/2018. Öryggisáætlanirnar skulu vera í samræmi við eðli starfseminnar og tryggja að öryggi gesta í ferðum rekstraraðilans verði fullnægjandi. Athugið að gera þarf öryggisáætlun fyrir hverja tegund ferða.
  • Leggja þarf fram lista yfir öryggisbúnað í ferðum (er oft hluti af öryggisáætlun).
  • Einnig þarf að framvísa staðfestingu á þjálfun og reynslu leiðsögumanna. Leiðsögumenn fyrirtækisins skulu hafa lokið þjálfun samkvæmt stöðlum AIMG með jákvæðri umsögn eða sambærilegri þjálfun.

Vatnajökulsþjóðgarður hvetur umsækjendur til að vera með vottun Vakans eða sambærilega vottun.

Í samningsskilmálum er gert ráð fyrir að rekstraraðilar skuldbindi sig til að taka þátt í rannsókn á þolmörkum viðkomandi svæðis. Jafnframt er gert ráð fyrir að rekstraraðilar taki þátt í að bæta aðgengi á einstökum áfangastöðum á jökli með tilliti til öryggis gesta og verndar umhverfis.

Nánari upplýsingar um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði og verklagsreglur um afgreiðslu umsókna má nálgast á vef Vatnajökulsþjóðgarðs www.vatnajokulsthjodgardur.is. Sjá einnig www.vakinn.is og www.ferdamalastofa.is. Einnig má senda fyrirspurn á póstfangið [email protected].

Samningstímabil hefst 1. október 2023 og lýkur 30. september 2024. Þeir umsækjendur sem hyggjast hefja starfsemina eftr 1. október 2023 eða síðar skulu senda inn umsókn a.m.k. 30 dögum áður en áætlað er að starfsemi hefjist. Vatnajökulsþjóðgarður áskilur sér rétt til að vísa frá öllum umsóknum eða hafna einstökum umsóknum uppfylli þær ekki skilyrði sem tilgreind eru í auglýsingu þessari og/eða ef fullnægjandi gögn fylgja ekki umsókn, sbr. 2. mgr. 35. gr. reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð.

Gjaldtaka vegna samningsgerðar byggir á ákvæðum reglugerðar um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu nr. 207/2023. Gjald fyrir hvern samning er 50.000 kr.

Senda inn umsókn

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum þjónustugátt Vatnajökulsþjóðgarðs