Auglýst er eftir umsóknum um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði
Náttúruverndarstofnun auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að bjóða upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur í atvinnuskyni á tilteknum jöklum frá 1. október 2025 til 30. september 2027.

Náttúruverndarstofnun auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að bjóða upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur í atvinnuskyni á eftirfarandi jöklum frá 1. október 2025 til 30. september 2027:
- Breiðamerkurjökull austur
- Breiðamerkurjökull vestur
- Falljökull/Virkisjökull
- Skeiðarárjökull
Samkvæmt 15. gr. a laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 er óheimilt að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Náttúruverndarstofnun, sbr. einnig V. kafli reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 300/2020.
Náttúruverndarstofnun auglýsir því eftir umsóknum frá þeim rekstraraðilum sem vilja bjóða upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur í atvinnuskyni á framangreindum jöklum. Gerðir verða rekstrarleyfissamningar samkvæmt lögum um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni nr. 100/2021 og 15. gr. a. laga um Vatnajökulsþjóðgarð við þá umsækjendur sem uppfylla nánar tiltekin skilyrði. Hægt er að sækja um heimild til rekstrar á fleiri en einu svæði. Samningarnir munu gilda til 30. september 2027.
Skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla og sýna fram á í umsóknargögnum eru eftirfarandi:
- Hafa gilt leyfi til reksturs ferðaskrifstofu eða ferðasala dagsferða frá Ferðamálastofu, sbr. lög um Ferðamálastofu nr. 96/2018. Umsækjandi skal vera handhafi leyfisins.
- Hafa í gildi ábyrgðartryggingu samkvæmt lögum um Ferðamálastofu nr. 96/2018.
- Hafa sett sér ítarlega umhverfis- og sjálfbærnistefnu og markmið um að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar. Stefnan skal ná til náttúru þjóðgarðsins og tryggja að hún verði ekki fyrir skemmdum af völdum starfseminnar og þarf að lágmarki að innihalda eftirfarandi þætti:
- Markmið um lágmörkun umhverfisáhrifa/ráðstafanir til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar
- Aðgerðaáætlun um framfarir/umbótastarf
- Mælitæki um árangur
- Upplýsingar um ábyrgðaraðila
- Vera með skriflegar, gildar öryggisáætlanir sem ná yfir allar ferðir rekstraraðila á viðkomandi svæði, sbr. IV kafli laga um Ferðamálastofu. Skulu öryggisáætlanir vera í samræmi við eðli starfseminnar og tryggja fullnægjandi öryggi gesta í ferðum rekstraraðilans. Öryggisáætlanir skulu hafa hlotið yfirferð Ferðamálastofu. Umsækjendur skulu senda öryggisáætlanir sínar til Ferðamálastofu á netfangið [email protected] og óska eftir yfirferð þeirra samtímis og sótt er um að bjóða upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur til Náttúruverndarstofnunar.
- Leggja fram gátlista um öryggisbúnað í ferðum og staðfestingu á þjálfun og reynslu leiðsögumanna. Leiðsögumenn fyrirtækisins skulu hafa lokið þjálfun samkvæmt stöðlum AIMG með jákvæðri umsögn eða sambærilegri þjálfun. Yfirleiðsögumaður skal að lágmarki hafa lokið jökla 3 námskeiði samkvæmt stöðlum AIMG.
Aðferðir við mat á áhættu í íshellum í Vatnajökulsþjóðgarði má nálgast hér.
Að hámarki verða gerðir 30 samningar við rekstraraðila sem vilja bjóða upp á íshellaferðir og/eða jöklagöngur á fyrrnefndu tímabili. Hægt er að sækja um leyfi fyrir annað hvort íshellaferðir eða jöklagöngur eða hvoru tveggja með sömu umsókn.
Ef heildarfjöldi umsókna sem berast stofnuninni verða fleiri en heildarfjöldi þeirra samninga sem gerðir verða skulu eftirfarandi atriði notuð við mat og val á tilboðum með þeim hætti að þær umsóknir sem hljóta flest heildarstig fá forgang til samningsgerðar (sjá nánar í matskvarða):
Nr. | Forsendur | Stig |
---|---|---|
1 | Reynsla af íshellaferðum og/eða jöklagöngum á viðkomandi svæði Vatnajökulsþjóðgarðs sem sótt er um. | 50 |
2 | Reynsla af íshellaferðum og/eða jöklagöngum annars staðar á Íslandi (þ.m.t. á öðrum svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs). | 10 |
3 | Sérstök áhersla er við skipulag ferðar á upplifun gesta og gæði: a) í hverri ferð er veitt a.m.k. 30 mín fræðsla um þjóðgarðinn, loftslagsbreytingar og öryggismál (10 stig) b) rekstraraðili fer að hámarki með 30 gesti á dag á viðkomandi svæði (10 stig) | 20 |
4 | Tækjakostur og búnaður umsækjanda. | 10 |
5 | Upplýsingar um hvernig umsækjandi hyggst stunda reksturinn út frá umhverfissjónarmiðum. | 10 |
1-5 | Heildarstigafjöldi | 100 |
Óskað er eftir því að umsækjandi skýri í umsókn sinni hvort, og þá hvaða, reynslu hann hafi af íshellaferðum og/eða jöklagöngum og þá á hvaða landsvæði, lýsingu á fyrirkomulagi ferða m.t.t. gæða, sbr. 3. tölul. (fyrirkomulag ferða, áætlaður fjöldi gesta á dag) hvaða tækjakost og búnað viðkomandi búi yfir, eða muni búa yfir, og upplýsingar um það hvernig umsækjandi hyggst stunda rekstur sinn út frá umhverfissjónarmiðum.
Mat á fyrrnefndum atriðum byggir á innsendum gögnum umsækjanda. Öll gögn umsækjanda verða að berast innan umsóknarfrests en gögn sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki tekin til greina.
Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að setja hámark á fjölda brottfara hvers samningshafa á ákveðin svæði á samningstímanum reynist það nauðsynlegt.
Náttúruverndarstofnun hvetur umsækjendur til að vera með vottun Vakans eða sambærilega vottun í gildi, þó slík vottun sé ekki skilyrði og hefur ekki áhrif á umsókn viðkomandi. Í samningsskilmálum kemur þó fram að uppfylla skal sértæk gæðaviðmið Vakans nr. 229 um gönguferðir um skriðjökla og nr. 228 um íshellaskoðun, varðandi gæði, öryggi, menntun og fræðslu starfsfólks og leyfilegan fjölda viðskiptavina/gesta á hvern leiðsögumann.
Í samningsskilmálum er gert ráð fyrir að rekstraraðilar skuldbindi sig til að taka þátt í rannsóknum á þolmörkum viðkomandi svæðis. Jafnframt er gert ráð fyrir að rekstraraðilar taki þátt í að bæta aðgengi á einstökum áfangastöðum á jökli með tilliti til öryggis gesta og verndar umhverfis. Náttúruverndarstofnun hvetur samningsaðila til samráðs um góða nýtingu svæðisins í ljósi sjálfbærni og umhverfisáhrifa.
Við undirritun samnings greiðir umsækjandi kr. 100.000 umsýslugjald vegna móttöku umsóknar, málsmeðferðar og samningsgerðar, sbr. reglugerð nr. 324/2025 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
Jafnframt skulu þeir rekstraraðilar sem fá heimild til ferða á jökla þjóðgarðsins greiða einstaklingsgjald allan samningstímann, sbr. reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs nr. 324/2025. Einstaklingsgjald að upphæð kr. 400,- reiknast á hvern viðskiptavin fyrirtækisins sem fer í íshellaferð og/eða jöklagöngu á þessum svæðum. Náttúruverndarstofnun tilkynnir með hæfilegum fyrirvara ef talin er þörf á að hækka gjaldið á samningstímanum.
Nánari upplýsingar um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði og verklagsreglur um afgreiðslu umsókna má nálgast á vef Vatnajökulsþjóðgarðs www.vatnajokulsthjodgardur.is. Sjá einnig www.vakinn.is og www.ferdamalastofa.is. Einnig má senda fyrirspurn á póstfangið [email protected].
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum island.is eigi síðar en 27. júlí 2025. Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að hafna umsóknum frá aðilum sem hafa ekki uppfyllt samningsskilmála í fyrri samningum við þjóðgarðinn.
Þeir samningar sem nú eru auglýstir gilda til tveggja ára.
Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að vísa frá öllum umsóknum eða hafna einstökum umsóknum uppfylli þær ekki skilyrði sem tilgreind eru í auglýsingu þessari og/eða ef fullnægjandi gögn fylgja ekki umsókn, sbr. 2. mgr. 35. gr. reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð.
Hér má finna samningsskilmála sem eru birtir með fyrirvara um minniháttar breytingar.