Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Malbikunarframkvæmdum við Jökulsárlón lokið

8. október 2026

Undanfarið hafa staðið yfir umfangsmiklar framkvæmdir við Jökulsárlón. Aðalbílastæðinu var lokað tímabundið í byrjun október til að undirbúa malbikun þess.

Til að tryggja að gestir gætu áfram heimsótt svæðið á meðan framkvæmdum stóð voru bílastæði í Eystri-Fellsfjöru stækkuð, bæði norðan og sunnan megin.

Landverðir voru á bílastæðavöktum frá morgni til kvölds á meðan lokunin stóð yfir. Þeir aðstoðuðu gesti við að finna laus bílastæði, leiðbeindu þeim um svæðið og höfðu yfirsýn yfir umferð og nýtingu bílastæðanna.

Malbikunarframkvæmdunum er nú lokið og aðalbílastæðið hefur verið opnað á ný. Enn á þó eftir að merkja bílastæðið, en með malbikun þess hefur verið stigið mikilvægt skref í að bæta aðstöðu og aðgengi gesta á svæðinu.

Við þökkum gestum og rekstraraðilum á svæðinu kærlega fyrir sýndan skilning og góða samvinnu á meðan framkvæmdunum stóð.