Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Opna

Aðalbílastæði við Jökulsárlón lokað tímabundið vegna framkvæmda

Aðalbílastæðið við Jökulsárlón er lokað frá og með föstudeginum 2. október til miðvikudagsins 7. október

1. október 2026

Aðalbílastæðið við Jökulsárlón verður lokað frá og með föstudeginum 2. október, til miðvikudagsins 7. október vegna framkvæmda. Gestum er bent á að nýta bílastæðin við Eystri-Fellsfjöru og Vestri-Fellsfjöru, en þau verða opin allan framkvæmdatímann. Tímabundin-salernisaðstaða verður í boði á báðum bílastæðunum.

Gestir sem ætla í bátsferðir á lóninu eða jökla- og íshellaferðir eru hvattir til að mæta fyrr en venjulega til að hafa nægan tíma til að ganga á milli bílastæða og brottfararstaða ferðanna.

Gestir með skerta hreyfigetu sem þurfa að komast nær þjónustuhúsinu eða brottfararstöðum ferða, eru hvattir til að hafa samband við starfsfólk á svæðinu sem mun aðstoða eftir bestu getu.

Mikið álag er á svæðinu um þessar mundir vegna fjölda gesta og við gerum okkur grein fyrir því að þessar tímabundnu breytingar geta haft áhrif á heimsóknina og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Framkvæmdirnar eru liður í því að bæta aðstöðu fyrir gesti og auka gæði heimsóknarinnar. Við kunnum vel að meta þolinmæði, skilning og samstarf gesta á þessum tíma. Landverðir og starfsfólk verða á svæðinu til að aðstoða gesti og svara spurningum.

Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að bjóða ykkur velkomin á Jökulsárlón.