Þórhallur Jóhannsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjóðgarðsvörður austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Þórhallur Jóhannsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjóðgarðsvörður austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs hjá Náttúruverndarstofnun og tók við starfinu um síðustu áramót.

Þórhallur Jóhannsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjóðgarðsvörður austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs hjá Náttúruverndarstofnun og tók hann við starfinu síðustu áramót.
Þórhallur hefur starfað hjá Vatnajökulsþjóðgarði síðan 2016 og komið víða við innan þjóðgarðsins í ýmsum störfum. Hann hóf störf sem landvörður í Snæfellsstofu og Snæfelli en hefur einnig starfað sem landvörður í Skaftafelli og á Breiðamerkursandi. Í ársbyrjun 2021 tók hann við sem yfirlandvörður á Breiðamerkursandi og síðast leysti hann þjóðgarsvörð á austurhluta suðursvæðis af í fæðingarorlofi.
Þórhallur er með BA gráðu í ferðamálafræði og landvarðaréttindi frá Háskólanum á Hólum, þar sem áhersla var á sjálfbæra þróun við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu. Hann er með Jökla 1 réttindi og íshellaréttindi frá Félagi fjallaleiðsögumanna. Útivist, náttúruvernd og uppbyggingu ferðamannastaða eru meðal annars áhugamál sem hann brennur fyrir. Þórhallur er úr Fljótsdal og verður með starfsaðstöðu í Snæfellsstofu og á Egilsstöðum.
Vatnajökulsþjóðgarður býður Þórhall hjartanlega velkominn í nýtt hlutverk.