Aðalbílastæði við Jökulsárlón lokað 2.-7. október
Aðalbílastæðið við Jökulsárlón verður lokað frá og með föstudeginum 2. október, til miðvikudagsins 7. október vegna framkvæmda. Gestum er bent á að nýta bílastæðin við Eystri-Fellsfjöru og Vestri-Fellsfjöru, en þau verða opin allan framkvæmdatímann. Tímabundin-salernisaðstaða verður í boði á báðum bílastæðunum.
Gestir sem ætla í bátsferðir á lóninu eða jökla- og íshellaferðir eru hvattir til að mæta fyrr en venjulega til að hafa nægan tíma til að ganga á milli bílastæða og brottfararstaða ferðanna.
Gestir með skerta hreyfigetu sem þurfa að komast nær þjónustuhúsinu eða brottfararstöðum ferða, eru hvattir til að hafa samband við starfsfólk á svæðinu sem mun aðstoða eftir bestu getu.
Mikið álag er á svæðinu um þessar mundir vegna fjölda gesta og við gerum okkur grein fyrir því að þessar tímabundnu breytingar geta haft áhrif á heimsóknina og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Framkvæmdirnar eru liður í því að bæta aðstöðu fyrir gesti og auka gæði heimsóknarinnar. Við kunnum vel að meta þolinmæði, skilning og samstarf gesta á þessum tíma. Landverðir og starfsfólk verða á svæðinu til að aðstoða gesti og svara spurningum.
Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að bjóða ykkur velkomin á Jökulsárlón.
