Tjaldsvæði í Skaftafelli
Tjaldsvæðið í Skaftafelli er opið frá 1. maí til 30. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í þjónustumiðstöð áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun. Vakin er athygli á því að hvorki er hægt að leigja tjöld né annan búnað.
Sími: 470 8300
netfang: skaftafell@vjp.is
Í Skaftafelli eru stæði fyrir um 600 tjöld. Stæði eru ekki tekin frá nema að um 40 manna hópa eða stærri sé að ræða.
Sérstök flöt er ætluð fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Þar eru tenglar fyrir rafmagn.
Salernisaðstaða er við þjónustumiðstöð og í tveimur þjónustuhúsum á tjaldsvæðinu. Þar eru líka sturtur. Nota þarf 50 kr. mynt í sturturnar og því er gott að hafa næga mynt tiltæka.
Þvottavél og þurrkari er í þvottahúsi við þjónustumiðstöð.
Enginn sérstök eldunaraðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðis. Þó eru vaskar undir skyggni við þjónustumiðstöð sem og grill sem gestir mega nota.
Þráðlaust internet er á tjaldsvæðinu. Kaupa þarf aðgang í þjónustumiðstöð.
Verðskrá Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir árið 2011
Verðskráin gildir á tjaldsvæðum þjóðgarðsins í Skaftafelli, Ásbyrgi og Vesturdal| Gisting á tjaldsvæði (verð per. nótt) |
|
| Fullorðnir | 1050 kr. |
| Ellilífeyrisþegar |
850 kr. |
| Börn 13-16 ára (í fylgd fullorðinna) |
500 kr. |
| Börn 12 ára og yngri | 0 kr. |
| Önnur þjónusta |
|
| Sturta (hvert skipti) |
300 kr. |
| Rafmagn (1 sólarhringur) |
650 kr. |
| Þvottavél |
500 kr. |
| Þurrkari |
500 kr. |
| Kortabæklingar |
500 kr. |
| Bæklingar |
300 kr. |
| Kynningarbæklingar |
150 kr. |
| Veitt aðstoð (klst.): |
9.500 kr. |
10 manna hópur eða fleiri: 10% afsláttur ef staðgreitt
