Beint í efni

Svartifoss

Það er óhætt að segja að Svartifoss sé einn af frægustu fossum landsins, sökum fagurrar umgjörðar úr óvenju reglulegum, gildum basaltstuðlum. Stuðlarnir mynduðust fyrir um 300.000 árum, þegar hraun rann niður Skaftafellsheiði og fyllti gamlan árfarveg. Við hæga kólnun dróst bergið saman og klofnaði þá í stuðla sem standa lóðréttir á kólnunarflötinn.

Gönguleiðir

S2

Svartifoss - Sjónarsker - Sel

5,8 km hringleið
2 klst
Auðveld

Svartifoss með sína formfögru stuðla er ein af náttúruperlum Skaftafells en leiðin gegnum skógarkjarrið býður ekki síður upp á einstaka upplifun á hvaða árstíma sem er. Á leiðinni má virða fyrir sér Hundafoss og Magnúsarfoss, frá Sjónarskeri er ústýni vítt til allra átta í góðu skyggni og gamli torfbærinn í Seli færir göngufólk til fyrri tíma búsetu í Skaftafelli.

S3

Skaftafellsheiði

16,6 km hringleið
5-6 klst
Krefjandi

Ganga um Skaftafellsheiðina býður upp á krefjandi en áhugaverða göngu um fjölbreytt landslag; gróskumikinn birkiskóg, mela og fjallaskriður með skriðjöklana Morsárjökul og Skaftafellsjökul sitthvoru megin heiðarinnar og flatan Skeiðarársand í suðri.

S4
Kristínartindar, Skaftafell, Skaftafellsheið

Kristínartindar

18 km hringleið
6-8 klst
Erfið

Ganga á Kristínartinda í góðu skyggni gefur færi á útsýni yfir fjalllendi Öræfannna, syðsta hluta Vatnajökuls og sandflæmi Skeiðarársands. Gangan er erfið og eingöngu fyrir vant göngufólk. Gönguleiðin fylgir að mestu sömu leið og leiðin um Skaftafellsheiði, fyrir utan efsta hlutann á tindana sjálfa.

S5

Sjónarnípa

6,5 km hringleið
2-2,5 klst
Krefjandi

Helstu kostir þessarar leiðar eru glæsilegt útsýni til Kristínartinda, Hrútfjallstinda og Öræfajökuls og eftir því sem nær dregur opnast Skaftafellsjökull fyrir göngufólki. Á vorin og snemmsumars má einnig eiga von á ríkulegu fuglalífi.

S6

Svartifoss - Sjónarnípa

7,1 km hringleið
2,5-3 klst
Krefjandi

Helstu kostir þessarar leiðar eru glæsilegt útsýni til Kristínartinda, Hrútfjallstinda og Öræfajökuls og eftir því sem nær dregur opnast Skaftafellsjökull fyrir göngufólki. Viðkoma við stuðlabergsprýddan Svartafoss setur svo punktinn yfir i-ið. Á vorin og snemmsumars er ríkulegt fuglalíf á leiðinni sem vert er að njóta á sama tíma og tekið er tillit til hreiðurgerðar og uppeldisstarfa.