Beint í efni

Bæjarstaðarskógur - M1

Í þessari lýsingu er miðað við að farið sé á hjóli inn í Bæjarstaðarskóg.

Vegalengd
13 km
Áætlaður tími
3 klst
Hækkun
x m
Tegund
Hringleið að hluta
Upphafsstaður
Fyrir utan Skaftafellsstofu

Frá Skaftafellsstofu er hjólað meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Lambhaga þar sem farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúnna er beygt í suðurátt og hjólað yfir veginn. Stígnum er fylgt á aurunum og í gömlum árfarvegi Skeiðarár, alveg að neðri göngubrúnni yfir Morsá.

Úr Bæjarstaðarskóg er hjólað framhjá Réttargili og Vestragili að rótum Jökulfells, og þaðan skáhallt yfir sandinn að innri göngubrú á Morsá við Götugil undir Skaftafellsheiði. Þegar er komið er að neðri brúnni er stígnum fylgt sömu leið að Skaftafellsstofu framhjá Lambhaga.

Bæjarstaðarskógur er hávaxnasti birkiskógur landsins en lítill um sig. Reyniviður vex sums staðar í skóginum og undirgróður er blómlegur. Á þessum slóðum er talið að bærinn Jökulfell hafi staðið. Hér endaði einnig landnám Þorgerðar landnámskonu en hún teymdi kvígu sína frá sólarupprás til sólarlags frá Kvíá í austri að Jökulfelli í vestri.

Tengdar gönguleiðir

M1

Bæjarstaðarskógur - Gestagata

15,3 km
4-5 klst
Auðveld

Gönguleið sem liggur frá Skaftafellsstofu og inn í Bæjarstaðarskóg. Ef syðri gönguleiðinni er fylgt inn í Bæjarstaðarskóg er búið að koma upp fimm skiltum frá Lambhaga og inní Bæjarstaðarskóg með upplýsingum og fræðslu um þjóðlíf, dýralíf og fleira.

M2

Morsárjökull

19,5 km
6-7 klst
Krefjandi

Morsárjökull er formfagur, tvískiptur skriðjökull. Neðri hluti skriðjökulsins er fóðraður af falli íss niður þverhnípta hamra þar sem einnig myndast oft fossar sem eru með þeim hæstu á landinu. Í hlýju veðri má oft heyra drunur og bresti langar leiðir þegar fannir og ísflikki steypast fram af hamrastálinu í háum jökulfossi. Ofan á jöklinum má ennþá sjá ummerki gífurlegrar bergskriðu sem féll á jökulinn árið 2007.

M3

Kjós

30 km
8-10 klst
Krefjandi

Kjós er litskrúðugur fjallasalur með um 1000 metra háum skriðu- og hamraveggjum. Á norðurbrún Kjósarinnar rís hinn sérkennilegi tindur Þumall sem talinn er vera um tveggja milljón ára gamall gígtappi. Lagskipt litskrúð ber vott um nálægð við mikla eldstöð en landslagið er dæmigert roflandslag.

Kortabæklingur og kort