Gönguleiðir í Skaftafelli
Hér er stungið upp á nokkrum gönguleiðum í Skaftafelli sem allar njóta nokkurra vinsælda. Lýsingin er uppástunga um leiðarval og ávallt reynt að leggja til hringleið. Oftast er þó hægt að fara öðruvísi að; ganga öfugan hring, fram og til baka sömu leið eða nýta aðrar slóðir sem finnast.Hafa ber í huga að uppgefnar vegalengdir og göngutími eru til viðmiðunar.
Ef smellt er á myndirnar hér til vinstri má nálgast gönguleiðakort fyrir Skaftafell. Efra kortið er fyrir Skaftafellsheiði og Morsárdal en neðra kortið sýnir fremsta hluta Skaftafellsheiðar og láglendið framan hennar.
Prentuð útgáfa kortanna er fáanleg í gestastofum Vatnajökulsþjóðgarðs, upplýsingastöðvum þjóðgarðsins og hjá landvörðum.
Skaftafellsjökull
Vegalengd: 2 km (4 km hringleið)
Göngutími: ½ klst. (1½ klst. hringleið)
Gráðun gönguleiðar: 1
Gönguleiðin að Skaftafellsjökli hefst austan við Skaftafellsstofu. Þaðan liggur malbikaður stígur eftir jökulaurunum neðan Skaftafellsheiðar langleiðina að jökli. Frá malbikaða stígnum liggur stikuð slóð að öldu framan við jökul þar sem sett hefur verið upp upplýsingaskilti sem varar við þeim hættum sem kunna að leynast við jökulinn.
Þegar gengið er til baka er farin sama leið að næstu öldu (jökulmörk 1980). Þar er þá hægt að velja stikaða slóð sem liggur í suðurátt og síðan vestur að Skaftafellsstofu og fara þannig hringleið um jökulaurana. Eins er mögulegt að fara aftur að sama stíg og komið var.
Svartifoss
Vegalengd: 2 km (4 km hringleið)
Göngutími: 45 mín. (1½ klst. hringleið)
Gráðun gönguleiðar: 1 (auðveld)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði og beygt upp í hæðina þar sem heitir Austurbrekkur. Þaðan liggur leiðin áfram ofan Gömlutúna og farið er yfir Eystragil á göngubrú. Áfram er haldið framhjá Hundafossi og enn ofar er komið að Magnúsarfossi. Þaðan er haldið áfram upp uns komið er að hæð nokkurri sem af fæst gott útsýni til Svartafoss. Til að upplifa umgjörð fossins að fullu er hins vegar ráðlagt að halda áfram niður í gilið þar til komið er að fossinum.
Auðveldast er að fara sömu leið til baka, en fyrir þá sem treysta sér til er tilvalið að vara upp úr gilinu að vestanverðu og þaðan niður að Lambhaga. Komist menn á annað borð klakklaust upp úr gilinu eru engar frekari hindranir á þeirri leið, en í gilinu eru há uppstig þegar farið er um tröppur hlaðnar úr basaltstuðlum. Úr Lambhaga er síðan gengið meðfram tjaldsvæði að Skaftafellsstofu. Heildarlengd þessa hrings er um 4 km.
Sjónarsker
Vegalengd: 2,4 km
Göngutími: 1 klst.
Gráðun gönguleiðar: 1 (auðveld)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Eystragili. Farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúna er beygt upp í hæðina hjá Lambhaga. Frá Lambhaga er gengið upp brekkuna vestan Bæjargils að Magnúsarfossi og áfram upp að vestanverðu þar til komið er á Vesturheiði. Þaðan er stuttur gangur að Sjónarskeri.
Leiðin er í meðallagi brött og í henni mörg uppstig. Því er mælt með að göngumenn fari rólega yfir og gefi sér þá um leið tíma til að njóta fossanna í Bæjargili, en auk Magnúsarfoss eru þar Þjófafoss neðstur og þá Hundafoss. Eins er tilvalið að skoða gömlu rafstöðina sem er í gilinu rétt ofan síðarnefnda fossins.
Kristínartindar
Vegalengd: 16 km
Göngutími: 7 klst.
Gráðun gönguleiðar: 3 (erfið)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Eystragili. Farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúna er beygt upp í hæðina hjá Lambhaga. Frá Lambhaga er gengið upp brekkuna vestan Bæjargils að Magnúsarfossi og áfram upp að vestanverðu þar til komið er á Vesturheiði. Þaðan er stuttur gangur að Sjónarskeri. Áfram er gengið upp fyrir Skerhól og þaðan á Nyrðrihnauka og í Gemludal. Þaðan er farin slóð í skriðu upp í skarð ofan Gemludals og þaðan upp bratta skriðu á topp tindanna. Þar er gott að hafa göngustafi. Sama leið er farin til baka í skarðið og svo áfram í fjallshlíðinni vestanverðri þar til komið er að Glámu. Þaðan liggur leið að Sjónarnípu og um Austurbrekkur að tjaldsvæði. Hugnist mönnum ekki að ganga á sjálfa tindana er hægt að ganga fjölfarna slóð fyrir framan þá að Glámu þar sem leiðirnar sameinast á ný.
Sjónarnípa
Vegalengd: 3 km (6,9 km hringleið)
Göngutími: 1 klst. (2½ klst. hringleið)
Gráðun gönguleiðar: 2 (krefjandi)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði og beygt upp í hæðina við gatnamót undir Austurbrekkum. Þaðan er gengið skáhallt áfram upp Austurbrekkur þar til komið er að Sjónarnípu. Hækkun er tiltölulega jöfn á þessari leið.
Tilvalið er að ganga til baka um Austurheiði og má þá jafnvel hafa viðkomu við Svartafoss. Eins má sérstaklega mæla með því að ganga þann hring réttsælis, þ.e. í stað þess að fara stystu leið að Sjónarnípu er gengið langleiðina að Svartafossi og síðan um Austurheiði að Sjónarnípu. Helstu kostir þessarar leiðar eru glæsilegt útsýni til Kristínartinda, Hrútfjallstinda og Öræfajökuls og eftir því sem nær dregur opnast Skaftafellsjökull fyrir göngumanni. Til baka er gengið um Austurbrekkur að tjaldsvæði. Heildarlengd þessa hrings er 6,9 km.
Morsárjökull
Vegalengd: 9 km (18 km hringleið)
Göngutími: 3 klst. (6 klst. hringleið)
Gráðun gönguleiðar: 1 (auðveld)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Eystragili. Farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúna er beygt upp í hæðina hjá Lambhaga. Frá Lambhaga er gengið upp brekkuna vestan Bæjargils að Magnúsarfossi og áfram upp að vestanverðu þar til komið er á Vesturheiði. Áfram er gengið um Snið að Grjóthól og þaðan sem leið liggur inn að Morsárjökli.
Þegar farið er til baka er auðveldast að ganga sömu leið til baka að Grjóthól. Þaðan yfir Morsá á göngubrú og til suðurs að göngubrú við Götugil. Þaðan er gengið eftir stikaðri slóð að Skaftafellsstofu.
Bæjarstaðarskógur
Vegalengd: 16 km
Göngutími: 5-6 klst.
Gráðun gönguleiðar: 2 (krefjandi)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Eystragili. Farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúna er beygt upp í hæðina hjá Lambhaga. Frá Lambhaga er gengið upp brekkuna vestan Bæjargils að Magnúsarfossi og áfram upp að vestanverðu þar til komið er á Vesturheiði. Áfram er gengið um Snið að Grjóthól og þaðan þvert yfir dalinn í Bæjarstaðarskóg.
Úr Bæjarstaðarskóg er gengið framhjá Réttargili og Vestragili að rótum Jökulfells, og þaðan skáhallt yfir sandinn að göngubrú á Morsá við Götugil. Leiðin þar þvert yfir er óstikuð en taka skal stefnuna á fremsta hluta Skaftafellsheiðar og rata menn þá beint á brúna við Hrafnagil. Áfram er svo gengið eftir stikaðri slóð að Skaftafellsstofu.
Kjós
Vegalengd: 12,5 km í Kjósarmynni (15,5 km í Kjósarbotn)
Göngutími: 4-5 klst.
Gráðun gönguleiðar: 2 (krefjandi)
Frá Skaftafellsstofu er gengið meðfram tjaldsvæði áfram vestur undir heiðinni þar til komið er að Eystragili. Farið er yfir lækinn á göngubrú og áfram yfir Stóralæk á tveimur göngubrúm. Strax eftir síðari brúna er beygt upp í hæðina hjá Lambhaga. Frá Lambhaga er gengið upp brekkuna vestan Bæjargils að Magnúsarfossi og áfram upp að vestanverðu þar til komið er á Vesturheiði. Áfram er gengið um Snið að Grjóthól og þaðan þvert yfir dalinn í Bæjarstaðarskóg. Úr Bæjarstaðarskóg er gengið til norðurs eftir þornuðum áreyrum meðfram Kjósarlæk þar til komið er í Kjós. Vert er að hafa í huga að frá Bæjarstaðarskógi í Kjós er hvorki stikuð né greinileg gönguleið. Því þarf göngufólk að velja sér sjálft leið yfir áraurana.
Sama leið er gengin til baka áleiðis að Grjóthól en í stað þess að fara yfir brúna þar er gengið áfram suður að göngubrú við Götugil. Þaðan er gengið eftir stikaðri slóð að Skaftafellsstofu.
