- Svæðin
- Skaftafell
- Jökulsárlón / Hornafjörður
- Jökulsárgljúfur
- Ódáðahraun / Krepputunga
- Snæfell / Lónsöræfi
- Laki / Eldgjá / Langisjór
- Nýidalur / Vonarskarð / Tungnaáröræfi
- Vatnajökull | Hörfandi jöklar
- Skipuleggja heimsókn
- Fræðsla
- Stjórnsýsla
Vatnajökulsþjóðgarður vill vera fyrirmynd stofnana, sýna gott fordæmi í samgöngumálum, stuðla að sjálfbærni og betri árangi í daglegum rekstri. Vatnajökulsþjóðgarður vill leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfi og heilsu starfsfólks stofnunarinnar sem og allra landsmanna. Vatnajökulsþjóðgarður hvetur alla til að sýna fyrirmyndar hegðun í umferðinni.
Markmið samgöngustefnu þjóðgarðsins er að stuðla að því að starfsfólk noti vistvænan og hagkvæman ferðamáta. Einnig er leitast við að velja vistvæna valkosti við kaup á þjónustu og á flutningi. Vatnajökulsþjóðgarður stuðlar m.a. að því að starfsfólk hagræði vinnutengdum ferðum þannig að áhrif þeirra á umhverfið verði sem minnst. Einnig er hvatt til og komið á móts við starfsfólk sem vill nýta sér umhverfisvænni ferðamáta í og úr vinnu. Þjóðgarðurinn vill sýna gott fordæmi og efla vitund fólks um vistvænar samgöngur. Þjóðgarðurinn setur sér það markmið að vera kolefnishlutlaus stofnun árið 2021.
1. útgáfa 7. júní 2019