Mannauðsstefna

Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins. Krafturinn á bak við þjóðgarðinn liggur ekki einungis í einstakri náttúru, heldur einnig í kröftugu og ánægðu starfsfólki.

Mannauðsstefna skal tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika til að vaxa í starfi. Leitast skal við að skapa starfsmönnum tækifæri til að samræma vinnu og fjölskyldulíf.  Allir starfsmenn njóti sömu virðingar og enn fremur jafnréttis til launa, umbunar og starfsþjálfunar. Þjóðgarðurinn skiptist í fjögur rekstrarsvæði sem rekin eru sem aðskildar einingar og eru mörk þeirra tilgreind í reglugerð um þjóðgarðinn. Markmiðið er þó að samræma starfsemi rekstrarsvæðanna til að mynda sterka heild og er sameiginleg mannauðsstefna liður í því.

 1. útgáfa 20.12.2018