- Svæðin
- Skaftafell
- Jökulsárlón / Hornafjörður
- Jökulsárgljúfur
- Ódáðahraun / Krepputunga
- Snæfell / Lónsöræfi
- Laki / Eldgjá / Langisjór
- Nýidalur / Vonarskarð / Tungnaáröræfi
- Vatnajökull | Hörfandi jöklar
- Skipuleggja heimsókn
- Fræðsla
- Stjórnsýsla
Vatnajökulsþjóðgarður hefur sett fram ýmsar stefnur fyrir starfsemi sína og eru fleiri í vinnslu.
Í stefnum Vatnajökulsþjóðgarðs koma fram helstu áherslur, markmið og aðgerðaráætlanir.
Lög um Vatnajökulsþjóðgarð kveða á um að sett skuli verndaráætlun þar sem gerð sé grein fyrir helstu þáttum verndar og landnýtingar innan þjóðgarðsins. Vegna þess hve veigamikið hlutverk áætlunarinnar er í að stýra álagi og landnotkun innan þjóðgarðsins hlaut skjalið nafnið Stjórnunar- og verndaráætlun. Það byggir aðallega á tillögum frá svæðisráðum fjögurra rekstrarsvæða þjóðgarðsins og stefnumótun stjórnar.
Stjórnunar- og verndaráætlun vegur þungt í ákvarðanatöku. Samkvæmt lögum um þjóðgarðinn eru sveitarstjórnir bundnar af efni verndaráætlunar við gerðskipulagsáætlana fyrir landsvæði innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Stjórnunar- og verndaráætlun gengur þannig framar skipulagsáætlunum sveitarfélaga og er forsenda leyfisveitinga.
Í vinnslu
Eldri vinna