Óvissustig vegna landriss í Öskju
Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi Eystra lýsir yfir óvissustigi vegna landriss í Öskju.
Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi Eystra lýsir yfir óvissustigi vegna landriss í Öskju. Síðustu vikur hafa mælst hraðar landbreytingar í Öskju, bæði á GPS-mælitæki staðsett þar og eins með nákvæmri úrvinnslu gervitunglamynda. Landrisið er rúmlega 7 sentimetrar sem telst mikið á þessu tímabili.
Líklegasta skýringin er að á 2-3 km dýpi sé kvika að safnast fyrir. Í næstu viku munu Veðurstofa Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans efla mælingar og vöktun í Öskju til þess að geta fylgst enn betur með hegðun eldstöðvarinnar.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.
Vegna óvissustigs þá mælum við ekki með baðferðum í Víti þar sem aðstæður hita og sýrustig vatnsins getur breyst með litlum fyrirvara. Einnig er aðgengi að baðstað krefjandi og hægfarið komi til rýmingar með stuttum fyrirvara.
Nánar á vef Almannavarna og Veðurstofu Íslands