Lakagígar
Lakagígar urðu til í einu mesta blandgosi (mest hraun en líka veruleg gjóska) á jörðinni á sögulegum tímum. Það hófst 8. júní 1783 á suðvesturhluta gossprungunnar, þar sem hét Varmárdalur. Hann og Skaftárgljúfur, sem voru allt að 200 m djúp, fylltust af hrauni, sem breiddist síðan út á láglendinu á Síðu yfir marga bæi. Hraunið stöðvaðist við Eldmessutanga 20 júlí. Norðausturhluti sprungunnar tók að gjósa 29. júlí 1783. Hraun fyllti gljúfur Hverfisfljóts og breiddist út niðri í Fljótshverfi. Þetta gos hélt óslitið fram í október, þegar fór að draga úr því, en því lauk ekki fyrr en í febrúar 1784. Goshrinur urðu í Grímsvötnum meðan á Skaftáreldum stóð.
Gígaröðin er u.þ.b. 25 km löng, allt frá móbergsfjallinu Hnútu í suðvestri upp að Síðujökli. Móbergsfajjið Laki stendur nokkurn veginn í miðri gígaröðinn. Heildarflötur Skaftáreldahrauna er 565 km² og áætlað rúmmál gosefna rúmlega 12 km³. Aska frá gosinu barst alla leið til Evrópu. Móðuharðindin komu í kjölfar gossins vegna þess, hve eitrað það var. Talið er að 53% nautgripa (11.500), 82% sauðfjár (190.000) og 77% hrossa hafi drepizt vegna eitrunar og hagleysis. Íbúafjöldinn minnkaði um 20% (10.000) vegna hungursneyðar á árunum 1783 til 1786. Uppskerubrestur, pestir og hörmungar í Evrópu í kjölfar gossins eru raktar til móðunnar í lofti (aðallega örsmáir sýrudropar og öskuryk) sem hafði lækkandi hitastig í för með sér, þannig að leiða má líkur að því, að það hafi verið meðal orsaka frönsku stjórnarbyltingarinnar 1789. Þetta eldgos olli samt ekki eins miklum hörmungum og Eldgjárgosið árið 934, en vegna þess urðu sennilega víðtækar loftslagsbreytingar í Evrópu og Miðausturlöndum samkvæmt nýuppgötvuðum heimildum (2005). Um þetta gos eru til afar litlar ritaðar heimildir á Íslandi.
Á danska þinginu var rætt um að flytja hina eftirlifandi 40.000 Íslendinga til Jótlandsheiða en úr því varð ekki. Flestir gíganna eru nú huldir grámosa og óvíða á landinu er stórfenglegra og fegurra landslag að sjá en uppi á Síðuafrétti. Kynnisferðir eru í Lakagíga á sumrin (upplýsingar á Kirkjubæjarklaustri en sjá líka www.bsi.is).
Samvinnunefnd miðhálendisins hefur kynnt tillögur um breytingar svæðisskipulags miðhálendisins. Gert er ráð fyrir nýju skálasvæði á Galta og upplýsingamiðstöð með móttöku og snyrtiaðstöðu. Núverandi skálasvæði í Blágili verði breytt í fjallasel, þar sem verður aðstaða landvarða og tjaldstæði. Þá verður gönguleið, sem þverar Skaftá færð frá kláfi sunnan Sveinstinds suður fyrir Uxatinda með göngubrú, sem tengist betur gönguleiðum vestan Skaftár. Þannig er ætlunin að færa gönguleiðina frá viðkvæmu svæði við Kamba. Komið verði á hringakstri um svæðið, þannig að fólk geti ekið upp vestan Kirkjubæjarklausturs við Hunkubakka og niður austan Klausturs, Miklafellsveg, en hann færist upp um einn flokk og verður fjallvegur auk þess sem lega hans breytist. Hann tengist inn á Lakaveg við Galta. Núverandi vegarslóði, sem liggur upp á öxl Blængs um þröng og torfarin gil, sem eru að hluta innan friðlýsts svæðis, verður lagður af.
