Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Grímsvötn

gjalp-grimsvatnagos

Grímsvötn liggja í vestanverðum Vatnajökli og eru sú eldstöð sem hefur mestu gostíðni allra íslenskra eldstöðva. Vitað er um a.m.k. 60 gos á eldstöðvakerfi Grímsvatna síðustu 800 ár og hafa langflest þeirra orðið innan Grímsvatnaöskjunnar. Grímsvötn eru einnig eitt öflugasta jarðhitsvæði jarðarinnar með náttúrulegt varmatap sem nemur 2000-4000 MW. Úr Grímsvötnum koma Skeiðarárhlaup en þau voru orsök þess að ekki varð til akfær hringvegur um Ísland fyrr en 1974.

Grímsvatnasvæðið liggur undir nokkur hundruð metra þykkum ís víðast hvar. Íssjármælingar og aðrar jarðeðlisfræðilegar athuganir á 9. áratug 20. aldar vörpuðu ljósi á botnlandslag á svæðinu. Í ljós kom að Grímsvatnaeldstöðin er um 15 km í þvermál og rís allt að 700-900 m upp af mishæðóttum föstum botni sem er í 800-1000 m hæð yfir sjó. Í miðju Grímsvatna er samsett askja. Hún hefur verið greind í þrjá hluta: norðuröskju (12 km2), suður- eða meginöskju (20 km2) og austuröskju (16-18 km2). Að meginöskjunni að sunnan liggur Grímsfjall í suðri.  Á því ná tveir tindar upp úr ísnum, Svíahnúkar, Eystri- og Vestari-.  Eystri Svíahnúkur er hærri (1722 m y.s.) en þar hefur Jöklarannsóknafélag Ísland byggt þrjá skála.  Þeir eru bækistöð rannsóknaleiðangra og ferðamanna auk þess sem þar er aðstaða fyrir jarðskjálftamæla og önnur tæki sem vakta Grímsvatnasvæðið.

grimsvotn3Jarðhiti er mestur í meginöskjunni, en botn hennar er í 1060-1100 m hæð norðan Grímsfjalls. Í öskjunni er stöðuvatn, hulið 200-300 m þykkri íshellu.  Ís skríður stöðugt að vatninu.  Ísskriðið og stöðug bráðnun vegna jarðhita við íshellunna valda því að vatn safnast fyrir og vatnsborð Grímsvatna hækkar. Íshellan rís.  Þegar vatnsborð hefur risið nægilega, leitar vatnið framrásar norðaustan Grímsfjalls og undir Skeiðarárjökul.  Vatnið kemur undan jökli í farvegi Skeiðarár.  Þannig hefjast Skeiðarárhlaup sem oftast nær vaxa hægt í byrjun en svo hraðar þar til hámarki er náð.  Síðan fellur rennslið snögglega og útrásin lokast.  Fram yfir 1934 var algengast að um 10 ár liðu milli hlaupa, í hverju hlaupi runnu fram allt að 4-5 km3 vatns og hámarksrennsli var nokkrir tugir þúsunda m3/s.  Milli 1940 og 1996 var algengt hlé milli hlaupa 5 ár og þau urðu minni (1-3 km3 og hámarksrennsli 2.000-10.000 m3/s). Auk þessara hlaupa vegna jarðhitabráðnunar verða oftast jökulhlaup í tengslum við eldgos í Grímsvötnum, ýmist á undan þeim eða eftir þau. Verði gos eftir hlaup hefur þungi sem létt var af kvikuhólfi megineldstöðvarinnar leitt til þess að kvika hefur getið brotist upp. Þessi atburðarás átti sér oft stað fram til ársins 1934 en síðan ekki aftur fyrr en í nóvember 2004.

Í stóra hlaupinu sem kom í kjölfar Gjálpargossins 1996 varð mikið rask í Grímsvötnum.  Þá hefur aukinn jarðhiti veikt ísstífluna.  Þetta hefur leitt til þess að eftir 1996 hafa komið mörg lítil hlaup með óreglulegu millibili og langtímum saman hefur verið samfelldur leki niður til Skeiðarár.  Meðan það ástand varir verða ekki stór Skeiðarárhlaup.

gjalp-grimsvatnagosÁ árunum 1938 til 1996 urðu ekki eldgos í Grímsvötnum utan smágoss í lok maí 1983.  Í lok Grímsvatnahlaupa 1945 og 1954 varð aukin virkni jarðhita í sigkötlum í Grímsvötnum.  Leitt hefur verið að því getum að lítil eldgos hafi átt sér stað.  Engin merki sáust þó um gos í flugferðum yfir Grímsvötn og engin gosefni hafa fundist sem rekja mætti til gosa á þessum tíma.  Hins vegar hafa breytingar á jarðhitakötlum svipaðar þeim sem urðu 1945 og 1954 sést á síðustu áratugum án tengsla við eldgos.  Nýtt virknitímabil virðist nú hafið í Vatnajökli eftir kyrra tímabilið 1938-1996.  Frá 1996 hafa orðið þrjú eldgos:  Gjálpargosið 1996 (norðan Grímsvatn, Grímsvatnagos í desember 1998 og aftur í nóvember 2004. 

Vatnshæð Grímsvatna hefur verið mæld með GPS-tæki sem staðsett er á íshellunni.  Jarðskjálftamælar eru virkir í húsum Jöklarannsóknafélagsins á Eystri Svíahnúk en með GPS mælingum má fylgjast með aðstreymi kviku og landrisi eða landsigi. Fylgst er með breytingum á jöklinum vegna jarðhita og unnar ýmsar jöklafræðilegar mælingar í og við Grímsvötn. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica