Skaftafell
Náttúrufegurð, góð veðurskilyrði og úrval gönguleiða gera Skaftafell að kjöráfangastað þeirra sem vilja njóta útivistar í íslenskri náttúru. Þar er að finna margþætta þjónustu við ferðamenn og víst er að enginn þeirra fer ósnortinn heim.
Frá því að Skeiðarársandur var brúaður árið 1974 hefur Skaftafell verið vinsæll áfangastaður innlendra jafnt sem erlendra ferðamanna. Árið 1967 hafði Skaftafell verið lögformlega fest sem þjóðgarður en fram að því var Skaftafell hefðbundin búskapsjörð allt frá landnámi.
Sem þjóðgarður var Skaftafell skipulagt sem göngusvæði. Þar er úrval gönguleiða og allir eiga að finna leið við sitt hæfi. Vinsælt er að ganga styttri leiðir að Svartafossi og Skaftafellsjökli, en fyrir þá sem vilja fara lengra eru Morsárdalur og Kristínartindar helstu áfangastaðir.
Skaftafellsstofa er þjónustumiðstöð í Skaftafelli. Þar eru upplýsingamiðstöð, ferðamannaverslun og veitingasala. Einnig má þar finna sýningar sem gera jöklum, eldsumbrotum og búskaparsögu svæðisins góð skil.
Í Skaftafelli er stórt tjaldsvæði með öllu því helsta sem því tilheyrir.
Landverðir taka á móti gestum í Skaftafelli en hlutverk þeirra er að veita upplýsingar og fræðslu um þjóðgarðinn og sjá til þess að umgengnisreglum sé fylgt. Landverðir skipuleggja fræðslugöngur um þjóðgarðinn og er þátttaka í þeim gestum að endurgjaldslausu.
Sjálfstæð ferðaþjónustufyrirtæki hafa aðsetur í Skaftafelli og bjóða þau upp á skipulagðar jöklagöngur, mismunandi að erfiðleikastigi. Skaftafell er því hentugur áfangastaður fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref á jökli og þá sem vilja ganga á hæsta tind landsins, Hvannadalshnjúk.
Í vefsjá má sjá ýmsar gagnlegar upplýsingar um Skaftafell og nágrenni, t.d. lýsingar og myndir af staðháttum og gönguleiðir. Vefsjána má nálgast hér.
