Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Dettifoss er öflugasti foss Evrópu. Hann er 44 m hár og um 100 m breiður.

Dettifoss

dettifoss2

Dettifoss er öflugasti foss Evrópu. Hann er 44-45 m hár og um 100 m breiður. Ofan hans er Selfoss, 10 m hár, og neðan hans er Hafragilsfoss, 27 m hár. Flestir koma að Dettifossi austan Jökulsár vegna þess að vegurinn um Hólssand er betri en vestan ár en sá vegur verður endurbættur. Hvorum megin sem komið er að fossinum, verður að fara með gát.

Leiðin frá Dettifossi að Selfossi austan megin Jökulsár er u.þ.b. 1 km og auðvelt er að komast þangað gangandi. Hafragilsfoss er ekki síður áhugaverður en Dettifoss, hvað varðar umhverfi, jarðfræði og sögu. Hugmyndir voru uppi um virkjun vatnsaflsins í gljúfrunum, en þær strönduðu á því að hraunlögin eru of gropin til að halda vatni í uppistöðulóni. Á austurbarmi Jökulsárgljúfra nálægt Hafragilsfossi er þversnið í gíg á gossprungu sem kennd er við Randarhóla.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica