Snæfell
Snæfell er hæsta staka fjall landsins, 1833 m á hæð yfir sjó. Það sést víða að og útsýnið af tindi þess er geysivítt á góðum degi. Það er nokkuð keilulaga, enda forn megineldstöð, sem hefur ekki rumskað undanfarin 10 þúsund ár. Fjallið mun hafa myndast síðla á ísöld, a.m.k. að hluta, og er því yngsta eldstöð Austurlands. Vegna þess, hve hátt það rís, hverfa efstu fannir þess ekki á sumrin og í því eru stuttir brattir skriðjöklar. Það er tiltölulega auðvelt að klífa fjallið frá sæluhúsi Ferðafélagsins.
Vestan Snæfells og austan Jökulsár á Brú eru Vesturöræfi og vestan hennar Brúaröræfi. Á báðum þessum öræfum eru megindvalarstaðir hreindýra. Norðan Snæfells eru Nálhúshnjúkar og sunnan þess eru Þjófahnúkar, en þaðan er gott útsýni yfir Eyjabakkasvæðið, sléttlendi alsett flæðimýrum sem mynda falleg gróðursvæði. Eyjabakkar eru mikilvægir bæði hreindýrum og heiðargæsum.. Skemmtileg gönguleið liggur frá Snæfelli yfir Eyjabakkajökul að skála við Geldingafell og þaðan suður Lónsöræfi. Í Eyjabakkajökli eru tíðum stórkostlegir íshellar.
