Kringilsárrani
Kringilsárrani er mikilvægt beitiland hreindýra og þar eru merkilegar minjar um jökulframsrásir og jökulhop en Brúarjökull er öflugasti framhlaupsjökull landsins. Jökulminjar eru greinilegar og liggja svokallaðir hraukar yfir ranann þverann. Lengstu framhlaupin hafa náð 5-10 km fram. Raninn er um leið sérstæð og gróin landspilda, t.a.m eru þar sérkennilegar þyrpingar af hattsveppum. Við gerð Hálslóns hjá Kárahnjúkavirkjun gekk nokkuð á gróðurlendi Kringilsárrana.

