Ástand gönguleiða
SKAFTAFELL
(Uppfært 6. janúar 2011)*
Skaftafellsjökull
Greiðfært. Grjót hefur hrunið úr hlíðum Skaftafellsheiðar á hluta stígsins, en útbúin hefur verið hjáleið og er vegfarendum bent á að nýta sér hana.
Svartifoss
Ófært er að fossinum að vestanverðu vegna svellbunka í austanverðu Bæjargili. Fært er að austanverðu en fólki er bent á að fara varlega.
Sjónarsker / Kristínartindar
Fært er um Skaftafellsheiði; snjóföl í Kristínartindum og skriðurnar gaddfreðnar og hættulegar.
Sjónarnípa
Fært en svellbunkar geta verið á gönguleiðinni.
Morsárdalur (um Snið)
Illfært vegna svellbunka.
Morsárdalur (frá Sandaseli)
Fært en hálkubunkar geta verið til trafala austan við Hrafnagil.
Jökulsárgljúfur
(Uppfært 28. janúar 2011)*
Ásbyrgi
Snjór er á öllum stígum í Ásbyrgi. Vegurinn inn að Botnstjörn er ekki þjónustaður og helst einungis fær ef snjóalög eru ekki mikil.
Vesturdalur - Hólmatungur - Dettifoss
Vegur 862 sem liggur frá þjóðvegi 85 í Vesturdal og áfram að Hólmatungum og Dettifossi er lokaður. Því er ekki aðgengi að göngustígum á þessum stöðum. Vegur 864 austan megin við Jökulsá á Fjöllum er einnig lokaður. Vegur 864 opnast vanalega í lok maí/byrjun júní og vegur 862 1-2 vikum seinna.
* ATHUGIÐ: Vert er að hafa í huga að skilyrði getur breyst hratt í óstöðugu tíðafari. Því er alltaf mögulegt að ástand gönguleiða sé annað en hér segir. Sýnið því fyllstu aðgát þegar gengið er á stígum þjóðgarðsins, sérstaklega þar sem svellbunkar hafa myndast og hætta er á grjóthruni.
