Verndarflokkun þjóðgarðsins
Mikil áhersla er lögð á að fylgja alþjóðlegum viðmiðum um rekstur verndarsvæða við stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þannig sé einnig ljóst hvaða sess þjóðgarðurinn hefur í alþjóðlegu samhengi.
Alþjóðanáttúruverndarsamtökin International Union for Conservation of Nature (IUCN) hafa meðal annars sérhæft sig í skipulagningu verndarsvæða vegna mikilvægis þeirra í tengslum við náttúruvernd. Á síðari árum hafa samtökin lagt æ meiri áherslu á gott samstarf við heimafólk við þá vinnu. Varanlegur árangur hljóti að byggjast á samspili náttúru, búsetu og byggðaþróunar í sátt við íbúa. Skilaboð samtakanna eru skýr: „Við þurfum að setja verndarsvæði í stórt samhengi til þess að sýna fram á að þau styrki líka atvinnulíf nærsvæða og almenna velferð. Þau séu þannig órjúfanlega samofin arðbæru og öruggu umhverfi." Samtökin hafa útbúið leiðbeiningar, sem taka mið af ofangreindum áherslum, um hvernig skipuleggja má verndarsvæði og rekstur þeirra. Þar eru verndarsvæði flokkuð í sex verndarflokka eftir meginmarkmiðum verndunar. Í hverjum flokki eru meginmarkmiðin skýrð og leiðbeint um hvað hafa þarf til hliðsjónar til að tryggja verndun.
Meginmarkmiðin endurspegla ólíkar áherslur, svo sem verndun, einkum til vísindarannsókna, eða til sjálfbærrar nýtingar náttúrulegra vistkerfa til að fullnægja þörfum samfélags. Á öðrum stöðum er áhersla lögð á að umhverfi megi þróast á sjálfbæran hátt, til dæmis með tilliti til náttúru, landslagsheilda, menningarminja eða menningararfleifðar.
Vatnajökulsþjóðgarði er skipt í svæði sem flokkuð eru í verndarflokka Ia, II og VI hjá IUCN.
-
Meginhluti þjóðgarðsins er flokkaður í verndarflokk II, sem svæði einkum ætlað til verndar vistkerfum og til útivistar.
-
Esjufjöll og svæði í kringum þau þar sem sérstakar reglur gilda, sbr. viðauka 1 í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008 og afmarkað er í viðauka 4 í reglugerð nr. 755/2009, eru flokkuð undir verndarflokk Ia, sem svæði sem stjórnað er einkum vegna vísindalegs gildis.
-
Hoffellssvæðið og Heinabergssvæðið eru flokkuð undir verndarflokk VI en þar er hefðbundin landnýting heimil skv. reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008, sbr. reglugerð nr. 755/2009. Áhersla er hér lögð á sjálfbæra landnýtingu náttúrulegra vistkerfa í tengslum við landbúnað og ferðaþjónustu.
Nánar er gerð er grein fyrir heimilli landnýtingu á þessum svæðum í 9. kafla Stjórnunar- og verndaráætlunar.
Meginmarkmiðum þessara þriggja verndarflokka samkvæmt skilgreiningu IUCN er nánar lýst hér fyrir neðan. Markmið, leiðarljós, landnotkunarákvæði og skipulag Vatnajökulsþjóðgarðs, sbr. þessa Stjórnunar- og verndaráætlun, tekur mið af áherslum IUCN fyrir þessa verndarflokka.
Gert er ráð fyrir að svæði innan Vatnajökulsþjóðgarðs geti fallið undir fleiri verndarflokka IUCN í framtíðinni, eftir því sem þjóðgarðurinn stækkar og fjölbreytni landsvæða, sem falla undir þjóðgarðinn, eykst. Ákveðið verði í hverju tilfelli fyrir sig undir hvaða verndarflokka þau svæði skuli falla og hvort ástæða gæti verið til að breyta verndaráherslum í tengslum við það á þeim svæðum sem fyrir eru.
