Tilgangur Stjórnunar- og verndaráætlunar
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er sett fram í samræmi við ákvæði laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 og reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008, með síðari breytingu.
Stjórnunar- og verndaráætlun er eitt meginstjórntæki þjóðgarðsins og verkfæri til stefnumótunar eins og segir í greinargerð með frumvarpi til laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Henni er samkvæmt því ætlað að vera stefnumótandi áætlun sem stjórnendur Vatnajökulsþjóðgarðs styðjast við þegar ákvarðanir um stjórnun og skipulag þjóðgarðsins eru teknar.
Í áætluninni er sett fram stefna um Vatnajökulsþjóðgarð, náttúruvernd, útivist og byggðaþróun. Stefnan var mótuð í samráði við fjölmarga hagsmunaaðila. Hún snertir á ótal atriðum sem snúa að verndun og nýtingu gæða þjóðgarðsins. Einnig gerir stefnan því skil hvernig nýta megi sem best tækifærin sem verða til vegna stofnunar þjóðgarðsins, styrkja það sem fyrir er en jafnframt skapa ný. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs ákvað, í samráði við umhverfisráðuneytið, að láta heiti áætlunarinnar endurspegla þessa víðu skírskotun hennar og kalla hana Stjórnunar- og verndaráætlun í stað verndaráætlunar eins og lögin gera ráð fyrir. Heitið Stjórnunar- og verndaráætlun er því hér eftir notað skv. ofangreindu, einnig þegar vísað er í fyrirmæli laga og reglugerðar þar sem vísað er til „verndaráætlunar".
Stjórnunar- og verndaráætlun er unnin á grundvelli tillagna að verndaráætlun frá svæðisráðum þjóðgarðsins. Áætluninni er ekki einungis ætlað að styðja stjórnendur þjóðgarðsins í störfum sínum heldur einnig að endurspegla sameiginlegar væntingar og áform þeirra sem koma að fjölbreyttri starfsemi, útivist eða eiga aðra hagsmuni á starfssvæði þjóðgarðsins. Markmið áætlunarinnar eru sett fram með það í huga að stjórnendur þjóðgarðsins og aðrir opinberir aðilar nái sem best að uppfylla skyldur sínar en geti jafnframt með aðgerðum sínum, stjórnun og verklagi stutt aðra aðila við að ná markmiðum sínum til hagsbóta fyrir starfsemi í þjóðgarðinum og á nærliggjandi svæðum. Áætlunin er mótuð í nánu samráði við fjölmarga aðila og einungis með áframhaldandi góðu samstarfi þeirra verður unnt að gera framtíðarsýnina um þjóðargersemina Vatnajökulsþjóðgarð að veruleika.
Lög um Vatnajökulsþjóðgarð gera ráð fyrir að í Stjórnunar- og verndaráætlun megi kveða á um einstakar verndaraðgerðir og framkvæmdir auk þess sem heimilt er að setja ákvæði um verklag í hana. Samkvæmt ákvörðun stjórnar, og með vísan til stöðu Stjórnunar- og verndaráætlunar gagnvart skipulagsáætlunum sveitarfélaga, er hins vegar ekki ætlunin að Stjórnunar- og verndaráætlun feli í sér ítarlega aðgerðaáætlun sem háð er fjárlagaramma sem getur verið síbreytilegur frá ári til árs. Áætluninni er fyrst og fremst ætlað að útlista áherslur og leggja til nauðsynlega stefnu og leiðsögn. Þannig getur Stjórnunar- og verndaráætlun staðið sjálfstætt í nokkur ár. Í framhaldi af gerð áætlunarinnar verður unnin aðgerðaáætlun og aðrar starfsáætlanir sem miða að því að koma Stjórnunar- og verndaráætlun í framkvæmd innan þess fjárlagaramma sem settur er.
Stefna þjóðgarðsins byggist á framtíðarsýn þar sem horft er til næstu 20 ára. Aðgerðaáætlun byggð á Stjórnunar- og verndaráætlun gerir þó ráð fyrir forgangsaðgerðum sem spanna skemmra tímabil eða um 5 ár. Í lögum er gert ráð fyrir að Stjórnunar- og verndaráætlun verði endurskoðuð eigi sjaldnar en á 10 ára fresti.
